Stórutjarnaskóli - Öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna
Málsnúmer 2609021
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sigríði Árdal er varðar öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026
Á síðasta fundi sveitarstjórnar var sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla til að koma til móts við athugasemdir sem borist höfðu frá Sigríði Árdal varðandi öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna. Einnig var óskað eftir greinargerð frá sviðsstjóra og skólastjóra varðandi sama mál.
Skv. upplýsingum frá sviðsstjóra hefur verið brugðist við athugasemdum í samráði við skólastjóra. Einnig hefur greinargerð borist frá skólastjóra Stórutjarnaskóla þar sem farið er yfir það sem gert hefur verið til að koma til móts við athugasemdir foreldra.

Til máls tók: Dóra Rún.
Sveitarstjórn þakkar sviðsstjóra fjölskyldusviðs og skólastjóra fyrir greinargerðina og skjót viðbrögð.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að öryggi nemenda sé ávallt í fyrirrúmi og mun, í samstarfi við stjórn Tjarna hf., leita varanlegrar lausnar vegna þeirrar skörunar sem orðið hefur á starfsemi hótelsins og grunnskólans.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að endanleg lausn liggi fyrir áður en starfsemi hótelsins hefst á ný á vordögum.
Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að láta framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla, s.s. filmun í glugga upp í örugga hæð í samráði við skólastjóra.
Einnig felur sveitarstjórn sviðsstjóra fjölskyldusviðs að taka saman með skólastjóra stutta greinargerð um truflun af rekstri hótelsins á lóðinni sem komi til sveitarstjórnar fyrir næsta fund.
Að auki beinir sveitarstjórn því til stjórnar Tjarna hf. að vinna að varanlegri lausn á málinu.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.