Fara í efni

Norðurorka - erindi til eigenda vegna lántöku 2026

Málsnúmer 2609023

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi til eigenda Norðurorku hf. vegna lántöku 2026
Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkir hér með á fundi sínum þann 10. september 2026 að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Norðurorku hf. til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra kt. 070268-2999, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Þingeyjarsveitar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?