Fara í efni

Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits - mál nr. S-1132026 í samráðsgátt

Málsnúmer 2608018

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingum á ýmsum reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna í kjölfar nýsamþykktra laga um einföldun eftirlits.

Alþingi samþykkti nýlega frumvarp um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með frumvarpinu eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.

Frestur skila umsagnar er til 17. ágúst nk.
Til máls tók: Knútur.


Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tekur undir bókun Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra vegna fyrirhugaðs flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins frá og með 1. janúar 2027.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að skýrt verði hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga og hvaða fjármögnun fylgi þeim verkefnum. Þá verði tryggt að breytingarnar leiði ekki til lakari þjónustu, verra aðgengis íbúa og fyrirtækja að þjónustunni, lengra viðbragðs og minni þekkingar á staðbundnum aðstæðum á landsbyggðinni.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma á framfæri bókun sveitarstjórnar innan tilskilins frest.

Samþykkt samhljóða.


Getum við bætt efni þessarar síðu?