Fara í efni

Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar - Mál nr. S-1382026 í samráðsgátt

Málsnúmer 2608017

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026

Í samráðsgátt liggur nú fyrir mál nr. S-138/2026 er varðar áformaðar breytingar á lögum með það að markmiði að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni með sameiningu og fækkun lögregluembætta.

Markmið áformanna eru að efla og styrkja lögregluna, ásamt því að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni í löggæslu. Með sameiningu og fækkun lögregluembætta gefst tækifæri til að efla lögregluna og gera hana betur í stakk búna til að sinna lögbundnum skyldum sínum, þar sem sameinuð embætti mynda stærri liðsheildir og hagkvæmari rekstrareiningar.

Frestur til að skila inn umsögn er til 18. ágúst nk.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur farið yfir áform um breytingar á lögum um lögreglu sem kynnt eru í samráðsgátt stjórnvalda undir máli nr. S-138/2026.

Ekki er skýrt í framlögðum gögnum hvernig markmið laganna eigi að nást og sveitarstjórn lýsir áhyggjum sínum af mögulegri þjónustuskerðingu í sveitarfélaginu og hvaða áhrif það hefur að færa stjórnun frá þjónustusvæði.
Löggæsla er samfélagsþjónusta og hefur áhrif á búsetugæði og öryggi.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að breytingar á skipulagi lögreglu tryggi áfram öfluga og aðgengilega löggæslu um allt land og taki mið af aðstæðum í dreifbýli og þeim áskorunum sem fylgja löngum vegalengdum og víðfeðmu starfssvæði.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að við frekari mótun tillagna verði sérstaklega horft til áhrifa þeirra á þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar, viðbragðstíma og samstarf lögreglu við sveitarfélög og viðbragðsaðila á hverjum stað.


Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma framangreindum sjónarmiðum á framfæri í umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt stjórnvalda fyrir tilskilinn frest.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?