Fara í efni

Kjarasamningur 2024 - erindi frá verkalýðsfélögum varðandi forsendubreytingar

Málsnúmer 2609040

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá formönnum verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögunum varðandi forsendu breytingar kjarasamnings frá 2024 þar sem eftirfarandi spurningar eru lagðar fram:

- Mun Þingeyjarsveit endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma

hópa?

- Hvaða aðgerðir hyggst Þingeyjarsveit ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?

- Hvernig hyggst Þingeyjarsveit leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?

- Hvaða aðrar aðgerðir telur Þingeyjarsveit mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Til máls tók: Nanna.

Þingeyjarsveit tekur undir markmið um verðstöðugleika og mun leggja sitt af mörkum í sameiginlegu átaki til að draga úr verðbólgu og stuðla að lækkun vaxta.

Almennar gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2027 hækka um 2,5%. Þar er meðal annars horft til samþykktar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var á Akureyri í september 2026.

Þingeyjarsveit vinnur nú að deiliskipulagi þéttbýliskjarna í samræmi við nýtt aðalskipulag, sem mun tryggja aukið framboð lóða. Jafnframt er sveitarfélagið í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

Í Þingeyjarsveit er ekki bil á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.

Sveitarfélagið styður jafnframt vel við barnafjölskyldur, meðal annars með gjaldfrjálsum leikskólamáltíðum og hagstæðum gjaldskrám leikskóla og tónlistarskóla.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?