Fara í efni

Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609069

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um forsendur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Eftirfarandi tillaga að forsendum er hér með lögð fyrir sveitarstjórn:

Fullnýting verði á útsvari skv. lögum, sbr. 1. mgr. 23. gr. l.nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga eða 14,97%.

Álagning fasteignaskatts verði sem hér segir:

Fasteignaskattur A-gjald 0,575% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis

Fasteignaskattur B-gjald 1,32% af fasteignamati opinberra stofnana og fasteignaskattur

C-gjald 1,65% af atvinnuhúsnæði.

Lagt er til að lóðarleiga af lóðum í þéttbýli verði 1% af fasteignamati, utan þeirra samninga í Reykjahlíð sem bundnir eru verði á m2 og tekur mið af lóðarleigu sem sveitarfélagið greiðir til landeigenda Reykjahlíðarjarða.

Vatns- og fráveitugjöld verði eftirfarandi: Vatnsgjald 0,190 % af fasteignamati og fráveitugjald 0,184 % af fasteignamati, aukavatnsgjald 0,42% af fasteignamati.

Almennar gjaldskrár hækki um 2,5 % og er þar horft samþykktar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var á Akureyri í september.

Við áætlun vegna launa verði horft til meðaltals hækkana þeirra félagsmanna sem eru í starfi hjá Þingeyjarsveit og laun hækkuð um 4%.
Til máls tók: Snæþór, Dóra Rún og Knútur Emil.

Snæþór lagði fram eftirfarandi tillögu:
Ég legg til að a-gjald fasteignagjalda fyrir árið 2027 verði 0,55% af fasteignamati.

Tillagan er felld með atkvæðum Knúts, Dóru, Nönnu og Harðar, atkvæði með tillögunni greiddu Snæþór, Snorri og Bylgja.


Sveitarstjórn samþykkir framlagðar forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2027 og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna drög að fjárhagsáætlun 2027-2030 á grundvelli þeirra.

Samþykkt með atkvæðum Knúts, Dóru, Nönnu og Harðar, Snæþór, Snorri og Bylgja sitja hjá.
Getum við bætt efni þessarar síðu?