Samtök um kvennaathvarf - beiðni um húsnæðisframlag 2027
Málsnúmer 2609074
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Samtökum um kvennaathvarf um styrk vegna húsnæðiskostnaðar Kvennaathvarfs á Akureyri en erindið er sent á öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra. Óskað er eftir styrk að upphæð 195.854 og er líkt og undanfarin ár óskað eftir styrk í hlutfalli við íbúafjölda. Heildarhúsnæðiskostnaður athvarfsins á Akureyri eru 4,3 m.kr.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
Samþykkt samhljóða.