Fara í efni

Umhverfis- og orkustofnun - umsókn Samherja Íslands ehf. um bráðabirgðaheimild

Málsnúmer 2610042

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 88. fundur - 22.10.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar umsögn Þingeyjarsveitar varðandi umsókn Samherja Íslands ehf. um bráðabirgðaheimild samkvæmt 7. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir vegna heitloftsþurrkunar að Laugum í Reykjadal, Þingeyjarsveit.

Frestur til að skila umsögn var til 15. október og samþykkti sveitarstjórn fyrirliggjandi umsögn í tölvupósti.
Til máls tók: Eyþór Kári.

Umsögn Sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar send UOS.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar telur starfsemi fiskþurrkunar að Laugum hafa verulega þýðingu fyrir atvinnulíf og nærsamfélag. Starfsemin á sér langa sögu á Laugum og hefur verið mikilvægur hluti atvinnulífs á svæðinu um áratugaskeið. Þar starfa um 20 manns og starfsemin nýtir þjónustu og innviði í nærsamfélaginu, meðal annars með verulegum kaupum á heitu vatni af Hitaveitu Reykdæla.

Að mati sveitarstjórnar gæti áframhaldandi stöðvun starfseminnar því haft alvarleg áhrif, fyrst og fremst á starfsfólk og fjölskyldur þeirra, en einnig á atvinnulíf og samfélag á Laugum og í nærliggjandi byggðum. Í fámennum samfélögum hefur brotthvarf starfa hlutfallslega mikil áhrif og dregið úr nauðsynlegri fjölbreytni atvinnulífs.

Sveitarstjórn telur þó jafnframt rétt að horfa til málsins í víðara samhengi þar sem að starfsemin hefur um árabil haft umtalsverð áhrif á lífsgæði íbúa í nágrenninu og í ljósi breyttra atvinnuhátta með auknu vægi ferðaþjónustu þá reynir enn frekar á lágmörkun umhverfisáhrifa af starfseminni. Að því sögðu þá má með réttu segja að sveitarstjórn yrði með þeim fyrstu að fagna því ef það fyndist önnur starfsemi sem betur samræmdist aðstæðum og umhverfi, til að nýta húsnæði og aðstöðu sem og það heita vatn sem er í boði.

Sveitarstjórn telur að þótt áhrif áframhaldandi stöðvunar geti þannig orðið veruleg, þá sé ekki sjálfgefið að þau verði öll varanleg. Það er svigrúm á Laugum til nýsköpunar og þróunar hvort sem er með breyttri starfsemi á núverandi grunni eða nýjum verkefnum sem betur samræmast nærumhverfi og áherslum samfélagsins.

Í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var starfsleyfi starfseminnar fellt úr gildi vegna þess að ekki lágu fyrir fullnægjandi upplýsingar til að tryggja að starfsemin leiddi ekki til hnignunar vatnshlota sem gætu orðið fyrir áhrifum. Jafnframt var sérstaklega bent á þá vernd sem Laxá í Aðaldal nýtur með sérlögum.

Sveitarstjórn bendir á að mikilvægt er að brugðist verði við þeim atriðum sem úrskurðurinn leiddi í ljós og að atvinnustarfsemi á svæðinu geti farið saman við vernd umhverfis og góð lífsskilyrði íbúa.

Sveitarstjórn telur því mikilvægt að við mat á umsókn um bráðabirgðaheimild verði annars vegar horft til þeirra verulegu samfélags- og atvinnuhagsmuna sem tengjast starfseminni og hins vegar til þess að rekstur hennar verði að geta samræmst þeim kröfum sem gerðar eru til umhverfisverndar og þeirra sjónarmiða sem fram koma í úrskurði úrskurðarnefndarinnar.

Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?