Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 38
Málsnúmer 2610001F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 88. fundur - 22.10.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð fræðslu- og velferðarnefndar frá 12. október. Fundargerðin er í níu liðum, liður fimm þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sér liður á fundinum.
Til máls tóku undir lið 2, "Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla": Nanna, Knútur, Freydís, Hallgrímur Páll og Eyþór Kári.
Sveitarstjórn tekur undir með bókun fræðslu- og velferðarnefndar frá fundi 12. október 2026 og lýsir áhyggjum af starfsmannaveltu og manneklu í leikskólum sveitarfélagsins. Kennarar og starfsfólk í leikskólum Þingeyjarsveitar vinna mikilvæg störf í þágu barna og samfélagsins og áríðandi er að tryggja að starfsaðstæður séu góðar.
Til máls tóku undir lið 8, "Beiðni um reglubundna viðveru hjúkrunarfræðings á Laugum": Eyþór Kári, Knútur, Nanna og Hallgrímur Páll.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og þau atriði hennar sem þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru tekin fyrir undir sérstökum dagskrárliðum.