Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 31
Málsnúmer 2611002FVakta málsnúmer
Eftirfarandi bókun er lögð fram:
Sveitarstjórn tekur heilshugar undir bókanir nefndarinnar í liðum sex og sjö og gerir að sínum.
Samþykkt samhljóða.
Nanna kynnti fundargerðina.
Fundargerðin er staðfest.
2.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 34
Málsnúmer 2611005FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
3.Umhverfisnefnd - 38
Málsnúmer 2611007FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
4.Skipulagsnefnd - 56
Málsnúmer 2611006FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
5.Skipulagsnefnd - 57
Málsnúmer 2611008FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
6.Skýrsla sveitarstjóra
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
7.Fjárhagsáætlun 2027
Málsnúmer 2609069Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og undirfyrirtækja, fyrir 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 til síðari umræðu.
Samþykkt samhljóða.
8.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer
Eftirtaldar gjaldskrár eru lagðar fram til fyrri umræðu:
Gjaldskrá Brunavarna Þingeyjarsveitar.
Gjaldskrá Flateyjarhafnar á Skjálfandaflóa.
Gjaldskrá gatnagerðargjalda í Þingeyjarsveit ásamt gjaldskrá skipulags- og byggingafulltrúa.
Gjaldskrá Hitaveitu Reykjahlíðar.
Gjaldskrá Hitaveitu Reykdæla, Hitaveitu Stórutjarna og tengigjald fráveitna og vatnsveitna.
Gjaldskrá fráveitugjalda Þingeyjarsveitar.
Gjaldskrá búfjárhalds og vörslu í Þingeyjarsveit
Gjaldskrá sorphirðu í Þingeyjarsveit.
Gjaldská hunda-, katta- og fiðurfjárhalds í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá fyrir hreinsun, tæmingu og eftirlit með rotþróm í Þingeyjarsveit .
Gjaldskrá lóðarleigu í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá vatnsgjalds í Þingeyjarsveit.
Sveitarstjórn vísar framlögðum gjaldskrám til seinni umræðu.
Samþykkt samhljóða.
Eftirtaldar gjaldskrár eru lagðar fram til einnar umræðu:
Gjaldskrá þjónustumiðstöðva Þingeyjarsveitar.
Gjaldskrá malarnáma í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá vegna útleigu á skólahúsnæði í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá heimaþjónustu í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá íþróttamiðstöðva í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá leikskóla í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá mötuneyta og skólavistunar í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá tónlistarskóla Þingeyjarsveitar.
Gjaldskrá félagsheimila Þingeyjarsveitar - Breiðamýri og Ljósvetningabúð.
Gjaldskrá félagsheimila Þingeyjarsveitar - Skjólbrekka.
Gjaldskrá félagsheimila Þingeyjarsveitar - Ýdalir.
Gjaldskrá búnaðar félagsheimila Þingeyjarsveitar.
Gjaldskrá Þeistareykjaskála.
Gjaldskrá fasteignaskatts í Þingeyjarsveit ásamt reglum um afslætti af fasteignaskatti.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu gjaldskráar íþróttamiðstöðva í Þingeyjarsveit og gjaldskráar leikskóla Þingeyjarsveitar.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir aðrar framlagðar gjaldskrár og felur sviðsstjóra fjármála - og stjórnsýslusviðs að birta þær á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
9.Útsvarsprósenta 2027
Málsnúmer 2611055Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
10.Rekstraryfirlit 2026
Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer
11.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka.
Samþykkt samhljóða.
12.Íbúafundir - framtíð félagsheimilanna, þjónustustefna og atvinnustefna
Málsnúmer 2611058Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar íbúum fyrir góða þátttöku og málefnalegar umræður á íbúafundunum. Framkomin sjónarmið og ábendingar verða höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við þjónustustefnu sveitarfélagsins, atvinnustefnu og framtíðarskipulag félagsheimila.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að birta upplegg fundanna á heimasíðu og kynna hvernig íbúar geta komið á framfæri hugmyndum og ábendingum út janúar 2027.
Samþykkt samhljóða.
13.Þjónustustefna
Málsnúmer 2512027Vakta málsnúmer
Stefnan hefur verið yfirfarin af starfsfólki skrifstofu ásamt því að hún var í samráði á íbúafundum í félagsheimilum sveitarfélagsins í nóvember 2026.
Sveitarstjórn þakkar starfsfólki skrifstofu fyrir góða vinnu við gerð stefnunnar og íbúum sveitarfélagsins fyrir gagnlegar ábendingar sem fram komu á íbúafundum í nóvember 2026. Sveitarstjórn samþykkir að vísa framlagðri þjónustustefnu sveitarfélagsins til síðari umræðu og felur sveitarstjóra að vinna lagfæringar samkvæmt yfirferð á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
14.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer
Nefndin vísar drögum að atvinnustefnu og aðgerðaráætlun til umsagnar og yfirferðar í skipulagsnefnd og sveitarstjórn á milli funda.
Nefndin stefnir á að ljúka vinnu við atvinnustefnuna á næsta fundi þann 7. desember.
Samþykkt samhljóða.
15.Ráðning sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs
Málsnúmer 2611048Vakta málsnúmer
Ein umsókn barst um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn umsækjanda í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn samþykkir að ráða Rögnvald Harðarson til frambúðar í starf sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar. Rögnvaldur hefur gegnt starfi sviðsstjóra tímabundið undanfarið tæpt ár og mun áfram gegna starfi byggingafulltrúa samhliða starfi sviðsstjóra.
Rögnvaldur er byggingafræðingur B.Sc. frá Vitus Bering í Danmörku og húsasmíðameistari og hefur jafnframt löggildingu í gerð eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga. Hann hefur víðtæka reynslu af byggingarmálum, framkvæmdum og opinberri stjórnsýslu, meðal annars úr störfum sínum sem byggingafulltrúi og verkefnastjóri framkvæmda hjá Þingeyjarsveit og sem sérfræðingur við brunabótamat hjá HMS á árunum 2013-2023. Þá hefur hann einnig reynslu af hönnun, byggingarstjórn og framleiðslu.
Sveitarstjórn lýsir ánægju með störf Rögnvaldar og samstarf á liðnu ári og hlakkar til áframhaldandi góðs og farsæls samstarfs.
16.Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla
Málsnúmer 2610023Vakta málsnúmer
Nanna vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Sveitarstjórn samþykkti vanhæfi Nönnu og vék hún af fundi kl. 15.08.
Til máls tóku: Eyþór Kári, Anna og Hallgrímur Páll.
Sveitarstjórn þakkar sviðsstjóra fjölskyldusviðs fyrir vinnu við málið.
Sveitarstjórn hefur farið yfir tillögurnar og hefur ákveðið þær aðgerðir sem sem gripið verður til, til að bæta starfsaðstæður í leikskólum sveitarfélagsins og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra að útfæra þær og birta. Lagt er upp með að þær komi til framkvæmda í stigskiptum aðgerðum á næstu mánuðum.
Jafnframt verði áhrif aðgerðanna metin reglulega og sveitarstjórn upplýst um framvindu málsins.
Samþykkt samhljóða.
Nanna og Dóra Rún koma aftur inn á fund kl. 15.13.
17.Fréttabréf Þingeyjarsveitar - framtíðarskipulag
Málsnúmer 2608025Vakta málsnúmer
Síðustu fréttabréf hafa verið gefin út í einfaldri prentvænni útgáfu og dreift á kaffistofur í stofnunum Þingeyjarsveitar, bókasöfn, í félagsstarf eldri borgara og með heimaþjónustu. Óskað hefur verið eftir að fólk skrái sig á póstlista til að fá fréttabréfin send í tölvupósti en það hefur ekki skilað sér til skrifstofu sveitarfélagsins.
Sveitarstjóri hefur tekið saman kostnað við aldreifingu á einni útgáfu af fréttabréfinu í allt sveitarfélagið. Með prentun og dreifingu er heildarkostnaður áætlaður um 485.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir, með vísan til framlagðs kostnaðarmats, að desemberútgáfu fréttabréfs sveitarfélagsins verði dreift í prentuðu formi til allra heimila í Þingeyjarsveit.
Í desemberútgáfunni verði jafnframt kynntar með skýrum hætti þær leiðir sem íbúum standa til boða til að nálgast fréttabréfið, þ.m.t. að lesa það rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins, skrá sig á póstlista og óska eftir prentuðu eintaki.
Samþykkt samhljóða.
18.Gígur - leigusamningur um þrjú vinnurými
Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer
Erindinu er frestað.
19.Veiðifélag Fnjóskár - aðalfundur 2026
Málsnúmer 2611029Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn staðfestir fyrri ákvörðun, sem tekin var með tölvupósti, um að Ósk Helgadóttir sæti fundinn fyrir hönd Þingeyjarsveitar og fari með atkvæði sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
20.Björgunarsveitin Þingey - flugeldasala Melgötu 9 - Umsókn um leyfi lóðareiganda
Málsnúmer 2611032Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar veitir jákvæða umsögn og heimilar, fyrir hönd sveitarfélagsins sem lóðareiganda, flugeldasölu að Melgötu 9.
Samþykkt samhljóða.
21.Norðausturvegur - athugasemdir tengdar fyrirhugaðri veglínu
Málsnúmer 2603007Vakta málsnúmer
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn telur nú sem áður, að veglína A sé heppilegri kostur til framtíðar. Sú afstaða byggist á heildarmati á umferðaröryggi, vegtæknilegum eiginleikum, greiðfærni og samfélagslegum áhrifum fyrir landshlutann annars vegar og umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar hins vegar.
Sveitarstjórn undirstrikar jafnframt að val veglínu A dregur ekki úr mikilvægi þeirra náttúruverndar- og grenndarsjónarmiða sem fram hafa komið. Við áframhaldandi undirbúning og leyfisveitingar verði lögð áhersla á að neikvæð áhrif framkvæmdarinnar verði lágmörkuð eins og kostur er og að mótvægisaðgerðir verði skýrar, raunhæfar og markvissar.
Sveitarstjóra er falið að svara erindinu.
Samþykkt samhljóða.
Freydís yfirgaf fundinn kl. 15.25.
Oddviti hóf aftur fund eftir fundahlé kl. 15.26.
22.Umf. Efling - Leikdeild - umsókn um styrk
Málsnúmer 2611063Vakta málsnúmer
Erindinu er frestað.
23.Vatnajökulsþjóðgarður - raforkutenging Dettifoss að vestan
Málsnúmer 2611060Vakta málsnúmer
Svæðisráð telur mjög brýnt að tryggð verði lagning raforku að Dettifossi vestan ár fyrir grunninnviði og hleðslu rafknúinna ökutækja. Ráðið styður að Náttúruverndarstofnun fylgi verkefninu eftir gagnvart RARIK og ráðuneytinu og leggi fram afl- og orkuspá fyrir fyrirhugaða uppbyggingu.
Svæðisráð norðursvæðis óskar eftir að minnisblaðið verði kynnt fyrir sveitarfélögunum, Þingeyjarsveit og Norðurþingi og óskað eftir skriflegri afstöðu þeirra til verkefnisins. Demantshringurinn er ein best þekkta ferðamannaleið á Íslandi og Dettifoss hefur þar mjög mikið aðdráttarafl. Reynslan er sú að með bættri þjónustu fjölgar gestum, því er um mikilvægt byggðarmál að ræða.
Sveitarstjórn tekur undir bókun svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Núverandi aðstæður á plani vestan Dettifoss eru óviðunandi. Dettifoss er eitt mesta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar á landinu og því brýnt að innviðir þar séu sterkir. Sveitarstjórn telur að lagning á raforkustreng að þjónustusvæði við Dettifoss vestan ár sé nauðsynlegt skref í að bæta þjónustu og öryggi á svæðinu.
Samþykkt samhljóða.
24.Kvenfélag Reykdæla - ósk um niðurfellingu húsaleigu á Breiðumýri vegna fjáröflunar
Málsnúmer 2611047Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið. Þar sem ekki eru forsendur til niðurfellingar húsaleigu fasteignarinnar samþykkir sveitarstjórn að veita Kvenfélagi Reykdæla styrk sem nemur fjárhæð húsaleigunnar vegna fjáröflunarsamkomu sem fram fór þann 15. nóvember sl.
Samþykkt samhljóða.
25.Kiðagil - tilrauna- og rannsóknarverkefni um sólarorku
Málsnúmer 2611067Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og samþykkir að gengið verði til samninga við Bárðarborg um samstarf vegna verkefnisins. Stuðningur Þingeyjarsveitar við verkefnið getur meðal annars falist í aðkomu að kynningu verkefnisins og miðlun niðurstaðna þess til íbúa sveitarfélagsins. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi um samstarfið fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
26.Velferðarnefnd - umsögn 285. mál - Aðgangur barna að samfélagsmiðlum
Málsnúmer 2611052Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
27.Skjálfandafljót í Kinn - ósk um efnistökusvæði á skipulag - aðalskipulag - breyting á skipulagi
Málsnúmer 2609070Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkir að kynna skipulagslýsingu og tillögu á vinnslustigi ásamt forsendum hennar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. og 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Afgreiðslan þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir að kynna skipulagslýsingu og tillögu á vinnslustigi ásamt forsendum hennar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. og 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.
28.HSÞ - rekstrarsamningur, kynning og reikningur vegna samnings
Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer
"Nefndin þakkar Ísaki fyrir góða kynningu og yfirferð á starfi HSÞ. Nefndin er sammála um mikilvægi reksturs HSÞ fyrir íþróttastarf í sveitarfélaginu og leggur til við sveitarstjórn að samningur við HSÞ verði endurnýjaður. ÍTM leggur til að samningurinn verði hækkaður í samræmi við framlagðar óskir í erindi HSÞ."
Samþykkt samhljóða.
29.Menningarsamningur
Málsnúmer 2610066Vakta málsnúmer
"ÍTM þakkar Karlakórnum og Sálubót fyrir erindið en telur ekki hægt að gera menningarsamninga að sinni þar sem ekki liggur fyrir menningarstefna sveitarfélagsins. Nefndin beinir því til félaganna að nýta áfram styrkumsóknir til nefndarinnar. ÍTM beinir því til sveitarstjórnar að gerð verði menningarstefna fyrir sveitarfélagið."
Sveitarstjórn tekur jákvætt í ábendingu íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar um gerð menningarstefnu fyrir Þingeyjarsveit. Sveitarstjórn telur mikilvægt að mótuð verði heildstæð stefna um menningarmál sveitarfélagsins á næstu árum og mun taka vinnslu hennar til skoðunar.
Samþykkt samhljóða.
30.Þekkingarnetið - ósk um samstarf - Frá móttöku til inngildingar
Málsnúmer 2611033Vakta málsnúmer
"ÍTM hvetur sveitarstjórn til þess að taka þátt í þessu verkefni."
Samþykkt samhljóða.
31.Þjóðleikhúsið - leikferð um landið - Laxness eins og hann leggur sig
Málsnúmer 2610063Vakta málsnúmer
"ÍTM leggur til við sveitarstjórn, verði þess óskað, að bjóða félagsheimilið Ýdali endurgjaldslaust undir sýninguna og hvetur skólastjórnendur til þess að fara með nemendur á unglingastigi á sýninguna."
Samþykkt samhljóða.
32.Sorpútboð Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer
"Þar sem málaflokkurinn um sorpmál er gríðarlega kostnaðarmikill og mikilvægur sveitarfélaginu þá óskar umhverfisnefnd eftir því að það verði ráðinn starfsmaður eða verktaki til að taka málaflokkinn, fara djúpt ofan í minnisblað umhverfisnefndar og klára sorpútboðið."
Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að tryggja faglega og markvissa vinnu við sorpútboð sveitarfélagsins. Sveitarstjóra er falið að láta vinna
verkefnislýsingu þar sem umfang þeirrar vinnu sem eftir stendur verði skilgreint og lagt mat á þörf fyrir sérhæfða ráðgjöf eða aðra fagþekkingu. Að því loknu verði tekin afstaða til með hvaða hætti verkefnið verði mannað og því lokið.
Samþykkt samhljóða.
33.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 313. mál - Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041
Málsnúmer 2611034Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
34.Dvalarheimili aldraðra Húsavík - fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2027
Málsnúmer 2611050Vakta málsnúmer
35.Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer
36.Norðurorka - hluthafafundur 2026
Málsnúmer 2611001Vakta málsnúmer
37.Minjastofnun Íslands - ársfundur 2026
Málsnúmer 2611041Vakta málsnúmer
38.Stjórn Norðurorku - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer
39.Eftirlitsfundur HMS með Leiguíbúðum Þingeyjarsveitar heses. vegna almennra íbúða
Málsnúmer 2611031Vakta málsnúmer
40.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 15:53.
"Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra sem fórust með Jökli ÞH sína dýpstu samúð.
Hugur okkar er hjá ykkur."
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Oddviti óskaði eftir að bæta með afbrigðum, eftirtöldum liðum á dagskrá fundarins:
Liður 11 - Fjárhagsáætlun - viðaukar
Samþykkt samhljóða.
Liður 25 - Kiðagil - tilrauna- og rannsóknarverkefni um sólarorku
Samþykkt samhljóða.
Liður 27 - Skjálfandafljót í Kinn - ósk um efnistökusvæði á skipulag - aðalskipulag - breyting á skipulagi
Samþykkt samhljóða.