Fara í efni

Kiðagil - tilrauna- og rannsóknarverkefni um sólarorku

Málsnúmer 2611067

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 90. fundur - 26.11.2026

Sigurlína Tryggvadóttir f.h. Bárðarborgar ehf. óskar eftir samstarfi við sveitarfélagið í tilrauna- og rannsóknarverkefni sem snýr að nýtingu sólarraforku. Ætlunin er að setja upp sólarraforkukerfi í Kiðagili og skoða orkunýtingu, raforkuframleiðslu, áhrif staðbundins landslags, áhrif veðurfars og árstíðasveiflna og hagkvæmni sólarorku við aðstæður á köldu svæði þar sem jarðhiti er ekki aðgengilegur. Markmiðið er  að afla mælanlegrar þekkingar sem nýtast mun öðrum íbúum sveitarfélagsins sem búa á sambærilegum svæðum.  Lagt er upp með að verkefnið verði grunnur að sameiginlegu átaki íbúa um aukna nýtingu sólarorku.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og samþykkir að gengið verði til samninga við Bárðarborg um samstarf vegna verkefnisins. Stuðningur Þingeyjarsveitar við verkefnið getur meðal annars falist í aðkomu að kynningu verkefnisins og miðlun niðurstaðna þess til íbúa sveitarfélagsins. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi um samstarfið fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?