Fara í efni

Vatnajökulsþjóðgarður - raforkutenging Dettifoss að vestan

Málsnúmer 2611060

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 90. fundur - 26.11.2026

Tekið fyrir erindi frá Náttúruverndarstofnun vegna fundar með Svæðisráði norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs vegna mögulegrar lagningar raforkustrengs að þjónustusvæðí við Dettifoss vestan ár. Eftirfarandi var bókað:



Svæðisráð telur mjög brýnt að tryggð verði lagning raforku að Dettifossi vestan ár fyrir grunninnviði og hleðslu rafknúinna ökutækja. Ráðið styður að Náttúruverndarstofnun fylgi verkefninu eftir gagnvart RARIK og ráðuneytinu og leggi fram afl- og orkuspá fyrir fyrirhugaða uppbyggingu.



Svæðisráð norðursvæðis óskar eftir að minnisblaðið verði kynnt fyrir sveitarfélögunum, Þingeyjarsveit og Norðurþingi og óskað eftir skriflegri afstöðu þeirra til verkefnisins. Demantshringurinn er ein best þekkta ferðamannaleið á Íslandi og Dettifoss hefur þar mjög mikið aðdráttarafl. Reynslan er sú að með bættri þjónustu fjölgar gestum, því er um mikilvægt byggðarmál að ræða.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn tekur undir bókun svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Núverandi aðstæður á plani vestan Dettifoss eru óviðunandi. Dettifoss er eitt mesta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar á landinu og því brýnt að innviðir þar séu sterkir. Sveitarstjórn telur að lagning á raforkustreng að þjónustusvæði við Dettifoss vestan ár sé nauðsynlegt skref í að bæta þjónustu og öryggi á svæðinu.

Samþykkt samhljóða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?