Menningarsamningur
Málsnúmer 2610066
Vakta málsnúmerÍþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 34. fundur - 17.11.2026
Karlakórinn Hreimur og Söngfélagið Sálubót hafa sent inn sameiginlegt erindi með ósk um að gerður verði menningarsamningur við kórana á sambærilegan hátt og verið er að gera við íþrótta- og ungmennafélög í sveitarfélaginu.
ÍTM þakkar Karlakórnum og Sálubót fyrir erindið en telur ekki hægt að gera menningarsamninga að sinni þar sem ekki liggur fyrir menningarstefna sveitarfélagsins. Nefndin beinir því til félaganna að nýta áfram styrkumsóknir til nefndarinnar. ÍTM beinir því til sveitarstjórnar að gerð verði menningarstefna fyrir sveitarfélagið.