Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.HSÞ - rekstrarsamningur, kynning og reikningur vegna samnings
Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer
Framkvæmdastjóri HSÞ kemur á fund að ósk ÍTM og kynnir málefni sambandsins og drög að nýjum rekstrarsamningi.
Nefndin þakkar Ísaki fyrir góða kynningu og yfirferð á starfi HSÞ. Nefndin er sammála um mikilvægi reksturs HSÞ fyrir íþróttastarf í sveitarfélaginu og leggur til við sveitarstjórn að samningur við HSÞ verði endurnýjaður. ÍTM leggur til að samningurinn verði hækkaður í samræmi við framlagðar óskir í erindi HSÞ.
Jón Sverrir kom aftur inn á fund kl. 14:49
2.Rafíþróttir
Málsnúmer 2611035Vakta málsnúmer
Fyrir ÍTM liggur erindi er varðar rafíþróttir í sveitarfélaginu. Verið er að endurnýja tölvubúnað hjá rafíþróttadeild Þórs á Akureyri sem þó er enn í góðu standi.
ÍTM þakkar erindið og beinir bréfritara að því að setja sig í samband við íþrótta- og ungmennafélög í sveitarfélaginu og kanna áhuga þeirra á því að stofna rafíþróttadeildir. ÍTM telur verkefnið ekki vera á því stigi að sveitarfélagið geti komið að því.
3.Menningarsamningur
Málsnúmer 2610066Vakta málsnúmer
Karlakórinn Hreimur og Söngfélagið Sálubót hafa sent inn sameiginlegt erindi með ósk um að gerður verði menningarsamningur við kórana á sambærilegan hátt og verið er að gera við íþrótta- og ungmennafélög í sveitarfélaginu.
ÍTM þakkar Karlakórnum og Sálubót fyrir erindið en telur ekki hægt að gera menningarsamninga að sinni þar sem ekki liggur fyrir menningarstefna sveitarfélagsins. Nefndin beinir því til félaganna að nýta áfram styrkumsóknir til nefndarinnar. ÍTM beinir því til sveitarstjórnar að gerð verði menningarstefna fyrir sveitarfélagið.
4.Þekkingarnetið - ósk um samstarf - Frá móttöku til inngildingar
Málsnúmer 2611033Vakta málsnúmer
Fyrir íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur erindi frá Þekkingarneti Þingeyinga með ósk um samstarf í verkefninu Frá móttöku til inngildingar
ÍTM hvetur sveitarstjórn til þess að taka þátt í þessu verkefni.
5.Þjóðleikhúsið - leikferð um landið - Laxness eins og hann leggur sig
Málsnúmer 2610063Vakta málsnúmer
Þjóðleikhúsið verður á ferð um landið í vetur með sýningu fyrir unglingastig skólanna þar sem rauði þráðurinn er kynning á Halldóri Laxness og verkum hans. Þjóðleikhúsið leitar eftir samstarfi við sveitarfélög um að útvega hentugt rými til að sýna í.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn, verði þess óskað, að bjóða félagsheimilið Ýdali endurgjaldslaust undir sýninguna og hvetur skólastjórnendur til þess að fara með nemendur á unglingastigi á sýninguna.
6.Velferðarnefnd - umsögn 286. mál - Stefna og aðgerðaráætlun gegn fátækt barna til ársins 2013
Málsnúmer 2611046Vakta málsnúmer
Fyrir íþrótta-, tómstundar- og menningarnefnd liggur umsagnarbeiðni 286. máls velferðarnefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um Stefnu og aðgerðaráætlun gegn fátækt barna til ársins 2031. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. nóvember nk.
ÍTM sér ekki ástæðu til þess að senda inn umsögn að þessu sinni.
Fundi slitið - kl. 15:45.
Jón Sverrir bar upp mögulegt vanhæfi, samþykkt og Jón vék af fundi kl. 14:37