Fara í efni

Íbúafundir - framtíð félagsheimilanna, þjónustustefna og atvinnustefna

Málsnúmer 2611058

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 90. fundur - 26.11.2026

Sveitarstjórn hélt íbúafundi í nóvember í Ljósvetningabúð, Ýdölum, Skjólbrekku og Breiðumýri. Til umræðu var framtíð félagsheimilanna ásamt umræðum um þjónustustefnu 2027 og atvinnustefnu 2027-2035.
Til máls tóku: Dóra Rún, Katrín, Knútur og Hallgrímur.

Sveitarstjórn þakkar íbúum fyrir góða þátttöku og málefnalegar umræður á íbúafundunum. Framkomin sjónarmið og ábendingar verða höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við þjónustustefnu sveitarfélagsins, atvinnustefnu og framtíðarskipulag félagsheimila.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að birta upplegg fundanna á heimasíðu og kynna hvernig íbúar geta komið á framfæri hugmyndum og ábendingum út janúar 2027.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?