Ráðning sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs
Málsnúmer 2611048
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 90. fundur - 26.11.2026
Auglýst var eftir sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar í lok október sl. með umsóknarfresti til 13. nóvember sl.
Ein umsókn barst um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn umsækjanda í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu.
Ein umsókn barst um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn umsækjanda í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn samþykkir að ráða Rögnvald Harðarson til frambúðar í starf sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar. Rögnvaldur hefur gegnt starfi sviðsstjóra tímabundið undanfarið tæpt ár og mun áfram gegna starfi byggingafulltrúa samhliða starfi sviðsstjóra.
Rögnvaldur er byggingafræðingur B.Sc. frá Vitus Bering í Danmörku og húsasmíðameistari og hefur jafnframt löggildingu í gerð eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga. Hann hefur víðtæka reynslu af byggingarmálum, framkvæmdum og opinberri stjórnsýslu, meðal annars úr störfum sínum sem byggingafulltrúi og verkefnastjóri framkvæmda hjá Þingeyjarsveit og sem sérfræðingur við brunabótamat hjá HMS á árunum 2013-2023. Þá hefur hann einnig reynslu af hönnun, byggingarstjórn og framleiðslu.
Sveitarstjórn lýsir ánægju með störf Rögnvaldar og samstarf á liðnu ári og hlakkar til áframhaldandi góðs og farsæls samstarfs.