Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
Dagskrá
1.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 27
Málsnúmer 2506002FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 27. fundar fræðslu- og velferðarnefndar frá 5. júní. Fundargerðin er í átta liðum. Liðir 3, 4, 6 og 7 þarnfast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru sérstakir liðir á dagskrá fundarins.
Ragnhildur Hólm kynnti fundargerðina.
2.Ársreikningur 2024
Málsnúmer 2505076Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja til fyrri umræðu drög að ársreikningi Þingeyjarsveitar, A- og B-hluta fyrir árið 2024. Þorsteinn Þorsteinsson, frá KPMG, endurskoðandi sveitarfélagsins, mætti til fundarins og fór yfir reikninginn. Einnig sátu fundinn undir þessum lið, Jón Ari Stefánsson frá KPMG, Margrét Hólm Valsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Gísli Sigurðsson skrifstofustjóri.
Til máls tóku: Knútur og Gerður.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi fyrir árið 2023 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi fyrir árið 2023 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
3.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2206003Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja til annarrar umræðu drög að breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar.
Sveitarstjórn samþykkir breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda til ráðuneytis til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Krílabær - framtíð
Málsnúmer 2506026Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn hefur verið að rýna rekstur skóla sveitarfélagsins á undanförnum mánuðum. Varðandi leikskóladeildina Krílabæ var til skoðunar lokun á deildinni frá og með haustinu.
Til máls tóku: Knútur, Arnór og Eyþór.
Oddviti lagði fram bókun.
Þann 27. mai sl. voru starfsmenn og foreldrar barna á leikskóladeildinni Krílabæ á Laugum boðaðir á fund oddvita, sveitarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Þar gerði oddviti grein fyrir áformun sveitarstjórnar um að hætta rekstri leikskóladeildarinnar með haustinu. Áformin voru gagnrýnd og voru foreldrar hvattir til að senda athugasemdir sínar til sveitarstjórnar áður en formleg ákvörðun yrði tekin.
Eins og fram hefur komið bárust erindi frá foreldrum, kennarafélagi Framhaldsskólans á Laugum ofl. þar sem áformunum var mótmælt. Fræðslu- og velferðarnefnd beinir því til sveitarstjórnar í fundargerð sinni þann 5. júní sl. að taka mið af þeim athugasemdum sem bárust og formfesta ekki áform sín um lokun leikskóladeildarinnar.
Sveitarstjórn þakkar foreldrum og öðrum fyrir málefnaleg og skýr sjónarmið sem fram koma í innsendum erindum og hefur ákveðið að taka tillit til skoðana þessara aðila og halda leikskólastarfi áfram í Krílabæ.
Sveitarstjórn mun leitast við í samráði við foreldra og starfsfólk að viðhalda faglegu starfi sem taki mið af farsæld barnanna, þörfum foreldra og þróunar samfélagsins.

5.Kennarafélag Framhaldsskólans á Laugum - ályktun vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskóladeild Krílabæjar
Málsnúmer 2505102Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur ályktun frá Kennarafélagi Framhaldskólans á Laugum, móttekin 30.05.2025, vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskóladeild Krílabæjar.
Fræðslu- og velferðarnefnd tók undir áhyggjur kennarfélags framhaldsskólans og beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til ályktunar kennarafélagsins við ákvörðun um framtíð leikskóladeildarinnar Krílabæjar.

Sveitarstjórn þakkar Kennarafélagi Framhaldsskólans á Laugum fyrir greinargóða ályktun og vísar til bókunar sveitarstjórnar undir dagskrárlið 4.
6.Krílabær - bréf foreldra varðandi fyrirhugaða lokun leikskólans
Málsnúmer 2506006Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá foreldrum barna í Krílabæ vegna fyrirhugaðrar lokunar á leikskólanum.
Fræðslu- og velferðanefnd tekur undir áhyggjur foreldra og beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til erindis þeirra við ákvörðun um framtíð leikskóladeildarinnar Krílabæjar.
Fræðslu- og velferðanefnd tekur undir áhyggjur foreldra og beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til erindis þeirra við ákvörðun um framtíð leikskóladeildarinnar Krílabæjar.
Sveitarstjórn þakkar foreldrum greinargóðar ábendingar og vísar til bókunar sveitarstjórnar undir dagskrárlið 4.
7.Krílabær - bréf til sveitarstjórnar vegna fyrirhugaðrar lokunar leikskólans
Málsnúmer 2506012Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Helgu Skúladóttur er varðar fyrirhugaða lokun á Krílabæ, leikskólanum á Laugum.
Sveitarstjórn þakkar Helgu erindið og vísar til bókunar sveitarstjórnar undir dagskrárlið 4.
8.Sveitarstjórn - leyfi frá störfum
Málsnúmer 2505097Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni um leyfi frá störfum frá Eygló Sófusdóttur vegna tímabilsins 1. júní 2025 til loka kjörtímabilsins.
Sveitarstjórn samþykkir að framlengja leyfi Eyglóar Sófusdóttur til loka kjörtímabilsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.Starfshópur um skólastefnu
Málsnúmer 2503068Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá Arnóri Benónýssyni um lausn frá setu í starfshóp um skólastefnu.
Sveitarstjórn samþykkir að leysa Arnór frá störfum í starfshóp um skólastefnu.
Fulltrúar sveitarstjórnar í starfshópnum verða þá tveir, Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir formaður og Eyþór Kári Ingólfsson auk þeirra eru fulltrúi hvers skóla tilnefndur af kennurum.

10.Tjarnaskjól - hönnunartillögur (Stórutjarnaskóli)
Málsnúmer 2404058Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur tillaga frá AVH arkitektum að varanlegu húsnæði leikskóladeildarinnar Tjarnaskjóls.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu enda er hún í samræmi við niðurstöðu þarfagreiningar sem unnin var í samráði við starfsfólk skólans og felur sveitarstjóra og umsjónarmanni fasteigna að vinna málið áfram.

11.Menningarmiðstöð Þingeyinga - aðalfundur 2025
Málsnúmer 2505081Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundarboð frá Menningarmiðstöð Þingeyinga. Fundur fer fram í Safnahúsinu á Húsavík 26. maí nk. kl. 17.
12.Brák íbúðarfélag hses. - ársfundur 2025
Málsnúmer 2505086Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundarboð frá Brák íbúðafélagi hses. Fundurinn verður haldinn á Íslands þing hótel (Iceland Parliament Hotel), Thorvaldsensstræti 2-6, 101 Reykjavík, 11. júní 2025 kl. 11:30. Á sama tíma heldur Samband íslenskra sveitarfélaga upp á 80 ára afmæli.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.Reykjahlíðarskóli - umsókn um starf skólastjóra
Málsnúmer 2505095Vakta málsnúmer
Á 27. fundi fræðslu- og velferðarnefndar var eftirfarandi bókað undir lið 7 - umsókn um starf skólastjóra:
"Nefndin fór yfir öll gögn málsins og mælir með því Huld Aðalbjarnardóttir verði ráðin í starf skólastjóra Reykjahlíðarskóla. Huld er grunnskólakennari að mennt og hefur víðtæka reynslu af stjórnun, rekstri og mannauðsmálum. Hún var skólastjóri Öxarfjarðarskóla frá 2000-2008, fræðslu- og menningarfulltrúi Norðurþings 2008-2013 og skrifstofustjóri Framsýnar stéttarfélags 2013-2020."

Til máls tók: Ragnhildur.
Sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins sem og umsögn fræðslu- og velferðanefndar. Sveitarstjórn samþykkir að ráða Huld Aðalbjarnadóttur í starf skólastjóra Reykjahlíðarskóla, jafnframt býður sveitarstjórn hana velkomna til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

14.Barnavernd - verklagsreglur um viðbrögð þegar grunur vaknar um ofbeldivanrækslu gegn börnum
Málsnúmer 2506011Vakta málsnúmer
Á 27. fundi fræðslu- og velferðarnefndar var eftirfarandi bókað um drög að verklagsreglum vegna gruns um ofbeldi eða vanrækslu gegn börnum:
"Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar."
"Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar."
Sveitarstjórn staðfestir framlagðar verklagsreglur og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að birta þær á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.Samband íslenskra sveitarfélaga - 80 ára afmælisráðstefna
Málsnúmer 2505104Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar boð á afmælisráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin verður 11. júní nk.
Fundi slitið - kl. 13:44.
Samþykkt samhljóða.