Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
Dagskrá
Aldursforseti sveitarstjórnar Knútur Emil Jónasson setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
1.Þingeyjarsveit - kosning oddvita og varaoddvita
Málsnúmer 2606012Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur að kjósa oddvita og varaoddvita til eins árs skv. 7. grein samþykkta Þingeyjarsveitar.
Til máls tók: Anna.
Anna Bragadóttir lagði fram eftirfarandi tillögu um kjör oddvita til eins árs:
Lagt er til að Knútur Emil Jónasson verði kjörinn oddviti.
Samþykkt með atkvæðum Önnu, Knúts, Freydísar, Dóru, Nönnu og Hallgríms. Eyþór situr hjá.
Anna Bragadóttir lagði fram eftirfarandi tillögum um kjör varaoddvita til eins árs:
Lagt er til að Nanna Marteinsdóttir verði kjörinn varaoddviti til eins árs.
Samþykkt samhljóða.

2.Þingeyjarsveit - kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026-2030
Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur tillaga að skipun í eftirtaldar nefndir:
Fræðslu- og velferðarnefnd:
Þórunn Sigtryggsdóttir, formaður (Á)
Jóna Ósk Antonsdóttir (Á)
Oddur Kári Ómarsson (Á)
Freydís Anna Ingvarsdóttir (L)
Snorri Már Snorrason (L)
Áheyrnarfulltrúi:
Nína Sæmundsdóttir (N)
Varamenn:
Ingibjörg Lukka Stefánsdóttir (Á)
Anna Bragadóttir (Á)
Sæmundur Þór Sigurðsson (Á)
Ólafur Ragnarsson (L)
Brynjar Árnason (L)
Varaáheyrnarfulltrúi:
Eyþór Kári Ingólfsson (N)
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd:
Snæþór Haukur Sveinbjörnsson , formaður (L)
Nanna Marteinsdóttir (Á)
Karl Magnússon (Á)
Sæmundur Þór Sigurðsson (Á)
Soffía Kristín Jónsdóttir (L)
Áheyrnarfulltrúi:
Jónas Þórólfsson (N)
Varamenn:
Arnheiður Rán Almarsdóttir (Á)
Hörður Sigurðsson (Á)
Haukur Marteinsson (Á)
Elísabet Sigurðardóttir (L)
Jóhannes Már Sigurðarson (L)
Varaáheyrnarfulltrúi:
Bjarni Ole Apel Ingason (N)
Skipulagsnefnd:
Knútur Emil Jónasson, formaður (Á)
Sigurður Guðni Böðvarsson (Á)
Líney Rúnarsdóttir (Á)
Hallgrímur Páll Leifsson (L)
Garðar Finnsson (N)
Varamenn:
Jóna Björg Hlöðversdóttir (Á)
Nanna Þórhallsdóttir (Á)
Anna Bragadóttir (Á)
Gunnar Ingi Jónsson (L)
Ásta Hrönn Hersteinsdóttir (N)
Umhverfisnefnd:
Arnheiður Rán Almarsdóttir, formaður (Á)
Hörður Sigurðsson (Á)
Guðrún Tryggvadóttir (Á)
Anton Freyr Birgisson (L)
Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir (N)
Varamenn:
Sigurður Erlingsson (Á)
Bergþóra Kristjánsdóttir (Á)
Anna Bragadóttir (Á)
Brynjar Árnason (L)
Garðar Finnsson (N)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd
Dóra Rún Kristjánsdóttir, formaður (Á)
Anna Dagbjört Andrésdóttir (Á)
Sigurlína Tryggvadóttir (Á)
Jón Sverrir Sigtryggsson (L)
Hermann Aðalsteinsson (N)
Varamenn:
Hannes Lárus Hjálmarsson (Á)
Ósk Helgadóttir (Á)
Katla Valdís Ólafsdóttir (Á)

Til máls tóku: Eyþór Kári og Hallgrímur.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Samþykkt samhljóða.
3.Þingeyjarsveit - ákvörðun um fundi sveitarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030
Málsnúmer 2606011Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um fundi sveitarstjórnar.
Til máls tók: Knútur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu um fundi sveitarstjórnar:
Sveitarstjórn samþykkir að fundir sveitarstjórnar verði haldnir að jafnaði á tveggja vikna fresti í Þingey og hefjist þeir að jafnaði kl. 14.
Næsti fundur verður haldinn 25. júní í Þingey og hefst kl. 14. Sumarfrí sveitarstjórnar hefst þann 26. júní og fyrsti fundur eftir sumarfrí verður 13. ágúst.

4.Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026 - 2030
Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja til endurskoðunar siðareglur kjörinna fulltrúa 2026 -2030.
Til máls tók: Nanna og Eyþór.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi siðareglur kjörinna fulltrúa fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og undirritar þær í lok fundar.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi siðareglur kjörinna fulltrúa fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og undirritar þær í lok fundar.
Samþykkt samhljóða.
5.Sveitarstjóri - ráðningarferli 2026
Málsnúmer 2606019Vakta málsnúmer
Í samráði við nýja sveitarstjórn var staða sveitarstjóra auglýst til umsóknar þann 1. júní sl. og er umsóknarfrestur til og með 14. júní. Mögnum ráðningarþjónusta sér um umsóknarferlið.
Til máls tók: Eyþór Kári.
Sveitarstjórn samþykkir að veita oddvita sveitarstjórnar ásamt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs umboð til að vinna að ráðningu sveitarstjóra. Unnið verði að ráðningunni í góðu samráði við sveitarstjórnarfulltrúa.

6.Tröllasteinn ehf. - aðalfundur vegna árs 2025
Málsnúmer 2605043Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá stjórn Tröllasteins ehf. sem haldinn verður fimmtudaginn 11. júní kl. 13 á Laugum (Hótel Laugar).
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn staðfestir að Arnór Benónýsson fari með umboð Þingeyjarsveitar á aðalfundi Tröllasteins en sveitarstjórn hafði áður samþykkt umboðsveitingu í tölvupósti.

7.Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - fjölgum íbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað - stofnframlög
Málsnúmer 2506053Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá HMS er varðar stofnframlög til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar íbúðir en umsóknarfrestur um stofnframlög er til 26. júní 2026.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að sækja um stofnframlag til tveggja íbúða við Melgötu í samstarfi við Brák íbúðafélag.

8.Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 - kjörstaður
Málsnúmer 2606001Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um kjörstað við þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026.
Til máls tók: Anna.
Sveitarstjórn samþykkir að kjörstaður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verði í Þinghúsinu að Breiðumýri. Einnig verði lögð áhersla á að boðið verði upp á greiðan aðgang að utankjörfundaratkvæðagreiðslu og að það verði auglýst vel á heimasíðu sveitarfélagsins.

9.Dvalarheimili aldraðra - aðalfundur 2026
Málsnúmer 2606006Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Dvalarheimili aldraðra sf. Fundurinn verður haldinn 24. júní kl. 15 í fundarsal stjórnsýsluhúss Þingeyjarsveitar, Þingey á Laugum
Til máls tók: Knútur.
Fulltrúar á aðalfund Dvalarheimilis aldraðra sf. fyrir árið 2025 verða Freydís Anna Ingvarsdóttir og Nanna Marteinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
Fulltrúar á aðalfund Dvalarheimilis aldraðra sf. fyrir árið 2025 verða Freydís Anna Ingvarsdóttir og Nanna Marteinsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
10.Upprekstur á afrétti í Þingeyjarsveit
Málsnúmer 2606017Vakta málsnúmer
Skv. 8. grein fjallskilasamþykktar fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps segir eftirfarandi í 2. mgr.:
"Ekki skal hefja upprekstur til afréttar að vori nema í samráði við fjallskilastjóra. Sumarbeitilönd sauðfjár, samkvæmt samþykkt þessari eru afréttir allir og heimalönd, að öðru leyti en því, sem girt er af þeim eða varið til annarra nota."

Sveitarstjórn áréttar að upprekstur til afréttar að vori skal fara fram í samráði við fjallskilastjóra viðkomandi fjallskiladeildar eins og kveðið er á um í gildandi fjallskilasamþykkt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun 2026. Upphæð viðauka er 650 þúsund og er hann í einum lið og snýr að málaflokki 07 Almannavörnum og er vegna uppsetningar eftirlitsdróna Lögregluembættisins á Norðurlandi eystra. Viðaukinn er fjármagnaður af handbæru fé.
Til máls tóku: Eyþór Kári, Hallgrímur og Anna.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka nr. 5 að fjárhæð kr. 650.000 sem fjármagnaður er af handbæru fé.
Samþykkt með atkvæðum Knúts, Önnu, Freydísar, Dóru, Nönnu, Hallgríms. Eyþór Kári greiddi atkvæði á móti.

12.Rekstrar- og fagleg úttekt á skólum
Málsnúmer 2505094Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar lokaskýrslur um rekstrar- og faglega úttekt á skólum Þingeyjarsveitar sem unnin var af Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri og HLH-ráðgjöf. Skýrslurnar voru kynntar á 80. fundi sveitarstjórnar og umfjöllun vísað til nýrrar sveitarstjórnar.
Til máls tók: Knútur og Anna.
Knútur vakti athygli á að Dóra Rún og Nanna hefðu borið upp vanhæfi í þessu máli vegna tengsla þeirra starfa við skóla. Sveitarstjórn hafnaði vanhæfi þeirra enda málið eingöngu til kynningar.
Sveitarstjórn stefnir að upplýsingafundi sveitarstjórnar og fræðslu- og velferðarnefndar með höfundum skýrslna í lok sumars enda efni þeirra yfirgripsmikið og þarfnast góðrar rýni af hendi nýrrar sveitarstjórnar og nefndarfólks.

13.HMS - yfirlit vegna húsnæðis- og skipulagsmála Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2605034Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar yfirlit frá HMS vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála en HMS hyggst á næstu misserum funda með sveitarstjórnum um land allt til að ræða stöðu og áskoranir í húsnæðis- og skipulagsmálum og hvernig stofnunin getur stutt sveitarfélögin í þeirri vinnu.
Til máls tók: Knútur.
14.Fjöregg - ályktun aðalfundar 2026
Málsnúmer 2606008Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar ályktun aðalfundar Fjöreggs 2026
Til máls tók: Anna.
15.Flugklasinn Air66N - greinargerð um starfið
Málsnúmer 2605046Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar greinargerð um starf Flugklasans Air66N síðustu mánuði.
16.Greið leið ehf - hluthafafundur júní 2026 - slit félagsins
Málsnúmer 2606003Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundarboð á hluthafafund Greiðrar leiðar ehf. og tillaga um slit félagsins en fundurinn var haldinn þann 9. júní sl.
Til máls tók: Knútur.
Á 80. fundi sveitarstjórnar var Knúti Emil Jónassyni veitt umboð til setu á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf. Fundarboð á hluthafafund barst eftir 80. fund sveitarstjórnar og er nú lagt fram til staðfestingar en meðfylgjandi fundarboð hefur áður verið kynnt núverandi sveitarstjórn í tölvupósti og voru ekki gerðar athugasemdir við að Knútur færi með umboð sveitarfélagsins á hluthafafundi.

17.Kolbeinn Kjartansson - Klettaborg í Hraunkoti - umsagnarbeiðni gistileyfis
Málsnúmer 2605001Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs vegna umsóknar Kolbeins Kjartanssonar um gistileyfi í Klettaborg Hraunkoti.
18.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. maí s.l.
Fundi slitið - kl. 14:31.