Greið leið ehf - hluthafafundur júní 2026 - slit félagsins
Málsnúmer 2606003
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 81. fundur - 11.06.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundarboð á hluthafafund Greiðrar leiðar ehf. og tillaga um slit félagsins en fundurinn var haldinn þann 9. júní sl.
Á 80. fundi sveitarstjórnar var Knúti Emil Jónassyni veitt umboð til setu á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf. Fundarboð á hluthafafund barst eftir 80. fund sveitarstjórnar og er nú lagt fram til staðfestingar en meðfylgjandi fundarboð hefur áður verið kynnt núverandi sveitarstjórn í tölvupósti og voru ekki gerðar athugasemdir við að Knútur færi með umboð sveitarfélagsins á hluthafafundi.
Samþykkt samhljóða.