Fara í efni

Þingeyjarsveit - ákvörðun um fundi sveitarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030

Málsnúmer 2606011

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 81. fundur - 11.06.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um fundi sveitarstjórnar.

Til máls tók: Knútur.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu um fundi sveitarstjórnar:

Sveitarstjórn samþykkir að fundir sveitarstjórnar verði haldnir að jafnaði á tveggja vikna fresti í Þingey og hefjist þeir að jafnaði kl. 14.

Næsti fundur verður haldinn 25. júní í Þingey og hefst kl. 14. Sumarfrí sveitarstjórnar hefst þann 26. júní og fyrsti fundur eftir sumarfrí verður 13. ágúst.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?