Yfirlýsing frá sveitarstjórn varðandi meint vanhæfi sveitarstjóra Þingeyjarsveitar
27.10.2026
Ágætu íbúar Þingeyjarsveitar
Sveitarstjórn hafði á 88.fundi sínum, þann 22.október síðast liðinn, erindi til afgreiðslu þar sem varpað var fram spurningum varðandi meint vanhæfi sveitarstjóra Þingeyjarsveitar, Katrínar Sigurjónsdóttur í kjölfar umfjöllunar RÚV um málið.
Bókun sveitarstjórnar (mál nr. 7.) frá fundinum inniheldur svör sveitarstjórnar og eru íbúar hvattir til að kynna sér fundargerðina í heild.
Úr bókun:
Sveitarstjórn harmar að verið sé að elta ólar við að tortryggja Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Sveitarstjórn finnst umfjöllun Ríkisútvarpsins um málið vera á hæpnum forsendum og lýsir fullu trausti og stuðningi við Katrínu í störfum sveitarstjóra og telur hana almennt ekki vera vanhæfa til að fjalla um málefni fiskþurrkunar Samherja á vettvangi sveitarfélagsins. Vanhæfi er þó metið í hvert skipti líkt og í öllum málum sem sveitarstjórn fjallar um.
Katrín, sem hóf störf 5. ágúst sl., gerði í aðdraganda ráðningar, sveitarstjórn ljóst eignarhald sitt í því félagi Samleið ehf. sem selur þjónustu, sem meðal annars Samherji kaupir. Ekki var horft til þess frekar við mat á umsóknum. Við mat umsækjenda var Katrín valin hæfust vegna marga þátta.
Sveitarstjórn hafði því vitneskju um eignarhald sveitarstjóra í Samleið ehf. við ráðningu hennar. Sú staða hefur ekki komið upp að hún hafi verið talin vanhæf í málum er varða Samherja eða Laugafisk, sem á sér að einhverju leiti skýringu í því að einungis hefur eitt mál komið á borð sveitarstjórnar eftir að hún kemur til vinnu, sem var kynning á rannsókn á blaðgrænu sem er hluti af vöktunaráætlun. Viðbrögð sveitarstjórnar í því máli voru að fela starfsmanni sveitarfélagsins að fylgja eftir aðgerðum sem sveitarfélagið hefur verið að vinna að til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, sem stafa af fráveitukerfi þess. Hæfi er alltaf til skoðunar og borið upp eftir því sem við á, en í tilfelli Katrínar hefur ekki á það reynt, enda hefur sveitarstjórn engar stjórnsýsluákvarðanir tekið í málinu frá því hún hóf störf hjá Þingeyjarsveit

Sveitarstjórn er mjög ánægð með samstarf sitt við Katrínu það sem af er kjörtímabilinu og óskar að svo verði áfram.
Sveitarstjórn stendur heilshugar að baki Katrínu og telur ekkert hafa komið fram sem gefi tilefni til að draga hæfni hennar, heilindi eða störf sem sveitarstjóra í efa.