Fara í efni

Upprekstur á afrétti í Þingeyjarsveit

Á 81. fundi sveitarstjórnar, 11. júní 2026, var bókað eftirfarandi:

Skv. 8. grein fjallskilasamþykktar fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps segir eftirfarandi í 2. mgr.:
"Ekki skal hefja upprekstur til afréttar að vori nema í samráði við fjallskilastjóra. Sumarbeitilönd sauðfjár, samkvæmt samþykkt þessari eru afréttir allir og heimalönd, að öðru leyti en því, sem girt er af þeim eða varið til annarra nota."

Sveitarstjórn áréttar að upprekstur til afréttar að vori skal fara fram í samráði við fjallskilastjóra viðkomandi fjallskiladeildar eins og kveðið er á um í gildandi fjallskilasamþykkt. 

Sjá fundargerð í heild sinni í heild sinni.

Getum við bætt efni þessarar síðu?