Umsókn um byggingarleyfi með rafrænum hætti

Frá og með 8.nóvember verður hægt að sækja um byggingarleyfi með rafrænum hætti í Þingeyjarsveit.

Umsækjendur þurfa að skrá sig inn á „Mínar síður“ á síðu Mannvirkjastofnunnar https://minarsidur.mvs.is  með rafrænum skilríkjum eða íslykli. 
Hér má finna leiðbeiningar um innskráningu og notkun á Mínum síðum.

Enn verður hægt að senda inn umsóknir á gamla mátann en stefnan er að fara alfarið í rafrænar umsóknir frá og með 1.janúar 2020.