Fara í efni

Heilsukjarninn og Gígur hljóta styrk frá Innviðaráðuneytinu

Heilsukjarninn á Laugum hefur hlotið 4 milljóna króna styrk til uppbyggingar og 1 milljón í rekstrarstyrk frá Innviðaráðuneytinu. Gígur í Mývatnssveit hlaut líka styrk upp á 1.840.000 krónur.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað tæpum 50 milljónum kr. í styrki til 26 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, segir í frétt á heimasíðu Byggðastofnunar. Styrkirnir eru veittir til þess að efla tækifæri til óstaðbundinna starfa, samkvæmt byggðaáætlun. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni, en þetta er í fyrsta sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni.

Vinnustaðaklasi er skilgreint sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða.

Verkefnið um heilsukjarna á Laugum er á mótunarstigi og nú gefst einstakt tækifæri fyrir fagfólk og frumkvöðla til að taka þátt í uppbyggingunni. Hér má lesa frétt sem var birt fyrir skemmstu um málið.

Getum við bætt efni þessarar síðu?