Fara í efni

Gæti þín starfsemi hentað heilsu- og vellíðunarkjarna?

Unnið er að uppbyggingu heilsu- og vellíðunarkjarna í Kjarna á Laugum í Þingeyjarsveit. Verkefnið er á mótunarstigi og nú gefst einstakt tækifæri fyrir fagfólk og frumkvöðla til að taka þátt í uppbyggingunni.

Laus eru til leigu fjölbreytt rými sem henta meðal annars fyrir sjúkraþjálfun, nudd, kírópraktor, hárgreiðslu, hugleiðslu og skrifstofustarfsemi. Um er að ræða eitt fjölnota rými, tvö til þrjú skrifstofurými og aðstöðu fyrir hárgreiðslu.

Aðstaðan býður jafnframt upp á sameiginlegt kaffirými, biðrými fyrir viðskiptavini og næg bílastæði, sem styður við þægilegt og faglegt starfsumhverfi.

Áhugasamir leigjendur hafa þegar sýnt verkefninu áhuga og er nú rétti tíminn til að koma hugmyndum í framkvæmd.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Þingeyjarsveitar í gegnum netfangið thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is 

Getum við bætt efni þessarar síðu?