Viltu starfa við afleysingar í heimaþjónustu í sumar?
Við óskum eftir fólki í afleysingar við heimaþjónustu í sumar og til að vera á úthringilista.
Félagsleg heimaþjónusta felur í sér margskonar aðstoð við einstaklinga á heimilum sínum sem geta ekki hjálparlaust sinnt daglegum verkefnum vegna öldrunar, veikinda, álags eða fötlunar. Áhersla er lögð á persónulega þjónustu þar sem samskipti og virðing eru höfð í fyrirrúmi. Þrif, aðstoð við þrif og önnur heimilisstörf er stórt verkefni í heimaþjónustu en einnig er um að ræða verkefni tengd félagslegum stuðningi og önnur aðstoð og stuðningur. Starfsmaður í heimaþjónustu þarf að vera hvetjandi og jafnframt sýna umburðarlyndi og skilning á aðstæðum þjónustuþega.
Hæfniskröfur:
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, frumkvæði, sveigjanleiki og geta til að vinna sjálfstætt
- Áhugi og/eða reynsla af að starfa með öldruðum
- Almenn kunnátta við þrif og önnur heimilisstörf
- Stundvísi, heiðarleiki og góð kunnátta í íslensku
- Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafi gild ökuréttindi og bíl til umráða
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð.
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör veitir Hjördís Albertsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 512 1800 eða á netfangið; hjordis.albertsdottir@thingeyjarsveit.is