Fara í efni

Vilt þú starfa við leikskólann Barnaborg í Aðaldal?

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal leitar að áhugasömum kennara eða leiðbeinanda í framtíðarstarf. Leikskólinn er hluti af Þingeyjarskóla, samreknum grunn- og leikskóla í Þingeyjarsveit. Í starfi skólans er lögð áhersla á að hlúa að sjálfsprottnum leik barnanna, öruggum tengslum barna við umönnunaraðila og virðingu fyrir öllum í leikskólastarfinu. Sjá nánar á: thingeyjarskoli.is

  • Um er að ræða 80-100% starf
  • Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
  • Aðstoð veitt við að finna húsnæði í nágrenni skólans.
  • Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
  • Virk þátttaka í skólaþróunarstarfi, skráningu á námi barnanna og reglulegum teymis- og starfsmannafundum.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) eða menntun sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum og þróa öflugt leikskólastarf.
  • Góð íslenskukunnátta til að geta átt í hnökralausum samskiptum við börnin og stutt við málþroska þeirra.
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi.
  • Sveigjanleiki, jákvæðni og áreiðanleiki.
  • Hreint sakavottorð (fylgi umsókn).

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu verða aðrar umsóknir skoðaðar.

Umsóknir og fylgigögn sendist til Nönnu Marteinsdóttur leikskólastjóra á netfangið: nanna@thingeyjarskoli.is sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið í gegnum sama tölvupóstfang eða síma: 898-0790.

Getum við bætt efni þessarar síðu?