Fara í efni

Vilt þú leigja aðstöðu í Matarskemmunni?

Nú gefst einstakt tækifæri til að koma starfsemi af stað í Matarskemmunni á Laugum í vottuðu rými, þar sem til leigu eru tvö iðnaðarbil, hvort um sig um 95 fm. Annað bilið er vel búið tækjum til matvælavinnslu og hitt hentar afar vel fyrir fullvinnslu matvæla.

Húsnæðið býður upp á spennandi möguleika fyrir hugmyndaríka frumkvöðla og framleiðendur sem vilja auka verðmæti hráefna úr héraðinu, þróa nýjar vörur og skapa sterkari tengingu milli staðbundinnar matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu á svæðinu.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja byggja upp metnaðarfulla starfsemi á sviði matvæla, nýta sér sérstöðu héraðsins og mæta vaxandi eftirspurn eftir staðbundnum, vönduðum afurðum.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar og kanna þau tækifæri sem Matarskemman á Laugum hefur upp á að bjóða.
Hafðu samband: thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is eða í síma 512-1800 til þess að fá frekari upplýsingar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?