Viðtökur og reynsla af jarðgerðarvélum er góð
Sala og afhending á jarðgerðarvélum til íbúa hófst í marsmánuði, en nú þegar hafa verið seldar 120 vélar og reynslan af nýju búbótinni er jákvæð.
Við slógum á þráðinn til Helen Jónsdóttur í Ljósavatnsskarði, en hún er ein af þeim íbúum sem eru byrjaðir að nota vélina.
„Vélin er náttúrulega frábær. Maður safnar bara í hana því sem afgangs er á heimilinu, og það er góður bæklingur með sem útskýrir hvað má ekki setja í hana sem er ansi fátt. Sumt þarf aðeins að skera ofan í hana.“
„Ég fylli hana á svona 1-2 dögum, og vélin breytir þessu í mold fyrir mig á 8 klukkustundum. Þetta er bara ótrúlegt tæki! Ég er að safna þessu saman og ætla að nota í kartöflugarðinn í vor.“

Nýtt sorphirðufyrirkomulag væntanlegt
Óheimilt verður að henda lífrænum úrgangi með almennu heimilissorpi. Lífrænn úrgangur verður enn sóttur í óbreyttri mynd á hvert heimili í sveitarfélaginu þangað til nýtt sorphirðufyrirkomulag kemst í gang. Nýtt fyrirkomulag miðar að því að halda kostnaði í skefjum og draga úr umhverfisáhrifum. Sorphirðuhringurinn í sveitarfélaginu er um 1.400 km, en sérstök heimtaka á lífrænu sorpi myndi valda miklum viðbótarkostnaði og auka kolefnisspor verulega. Sveitarfélagið býður íbúum að fá FoodCycler vélina á 50% afslætti, sem eina mögulega lausn á förgun lífræns úrgangs.
Einnig er unnið að útboði á sorphirðu þar sem búast má við frekar breytingum. Nánari upplýsingar um þá framkvæmd verða kynntar síðar.
- Umsókn um að fá jarðgerðarvél er að finna undir Umsóknir - Umhverfismál í Þjónustugátt Þingeyjarsveitar. Afhending fer svo fram eftir samkomulagi.
Íbúum er bent á að hafa samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar ef spurningar vakna, eða senda tölvupóst á Daða: dadi@thingeyjarsveit.is
Löglegir möguleikar íbúa til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi að loknu útboði:
- Moltugerðarvélar til heimilisnota (FoodCycler)
- Moltutunnur
- Bokashi-aðferð
- Haughús (ef aðgangur er fyrir hendi)
- Að fara með lífrænan úrgang á næsta gámasvæði