Viðtalstímar sveitarstjórnarfulltrúa

Sveitastjórnarfulltrúar hafa ákveðið að hafa opna viðtalstíma þar sem íbúum gefst kostur á að koma og ræða málefni sem snerta sveitarfélagið.

Fyrsti fundurinn verður haldinn að Hlíðavegi 6, Reykjahlíð 20. júní nk. frá kl. 16-18.

Á fundinum verða sveitarstjórnarfulltrúarnir Gerður Sigtryggsdóttir oddviti, Knútur Emil Jónasson varaoddviti og Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir.

Í ágúst verða opnir viðtalstímar á Stórutjörnum og Ýdölum, tímasetning verður auglýst síðar.

 

Sveitarstjórn hvetur íbúa til að notafæra sér þessa viðtalstíma.