Viðmiðunardagur kjörskrár er 15. maí

Viðmiðunardagur kjörskrár fyrir komandi sameiningarkosningar í Suður-Þingeyjarsýslu er 15. maí næstkomandi.

Um er að ræða sameiningarkosningar þar sem íbúar taka afstöðu til sameiningar Skútustaðahrepps og Þingeyjasveitar.

Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 15. maí nk. hefur ekki áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast í síðasta lagi 14. maí eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.

Í sameiningarkosningum eiga námsmenn sem búsettir eru á Norðurlöndunum rétt á því að vera teknir á kjörskrá en þeir þurfa að sækja sérstaklega um það hjá Þjóðskrá Íslands á þar til gerðu eyðublaði K-101 ásamt því að skila inn staðfestingu á námsvist. Hægt er að kjósa í sendiráðum Íslands í viðkomandi landi. Upplýsingarnar eru fengnar af vef Þjóðskrár skra.is