Verðfyrirspurn - Endurnýjun þaks á íþróttasal Stórutjarnaskóla
11.02.2026
Þingeyjarsveit óskar eftir tilboðum í endurnýjun þaks á íþróttasal Stórutjarnaskóla.
Lauslegt yfirlit:
- Rif á núverandi þakklæðningum, þakköntum og þakgluggum
- Endurnýjun borðaklæðningar eftir sem við á
- Loftræsing
- Klæðningar þaka og þakkanta
- Endurnýjun þakglugga
Stærð þakflatar er um 240m2
Verktími: 01.06.2026 – 10.08.2026
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið almar@faglausn.is
Gögn verða afhend frá og með föstudeginum 13. febrúar.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið almar@faglausn.is fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 10. Mars 2026.
Opnunarskýrsla verður send á bjóðendur sama dag kl. 14:00
