Veist þú um faldar perlur í Þingeyjarsveit?
Áhugaverðir áfangastaðir ferðamanna í sveitarfélaginu eru margir og fjölbreyttir, en við getum alltaf á okkur blómum bætt. Nýlega var gefin út skýrsla og aðgerðaráætlun um framtíð ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit, sem sveitarfélagið vann í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Mývatnsstofu, og einn liður í áætluninni er að koma auga á ferðamannastaði framtíðarinnar og koma þeim á kortið.
Hér má nálgast eyðublað, sem íbúar geta nýtt til þess að benda á áhugaverða staði. Gnægð er af fallegri náttúru í sveitarfélaginu okkar, og við tökum fegin á móti ábendingum um minna þekktar náttúruperlur en við óskum líka eftir ábendingum um staði sem hafa aðdráttarafl sökum menningarverðmæta, þjóðsagna og byggðasögu.
Allar hugmyndir eru vel þegnar, og því fylgir engin ábyrgð að benda á áhugaverðan stað.
Nokkrir staðir og verkefni á núverandi ferðamannastöðum í sveitarfélaginu eru á áfangastaðaáætlun Markaðsstofu Norðurlands. Hér er hlekkur á yfirlit þeirra, fyrir áhugasama.