Útboð - Endurbætur innanhúss í leikskóla Stórutjarnarskóla
05.02.2026
Þingeyjarsveit óskar eftir tilboðum í endurbætur innanhúss í leikskólaálmu Stórutjarnaskóla samkvæmt útboðsgögnum AVH.
Helstu verkþættir eru:
- Rif á núverandi innangerð
- Endurnýjun lagna
- Endurnýjun raflagna
- Klæðning veggja, gólfefni, innihurðir og innréttingar
- Loftræsing
- Málun
Stærð rýmis er um 180 fm.
Verktími er frá mars 2026 – 20. Júlí 2026.
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 9. febrúar n.k.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 9:00, miðvikudaginn 25. febrúar og verða tilboðin opnuð kl. 9:30 hjá AVH Kaupangi á Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun í fjarfundi óski þeir þess.