Útboð á rotþróarlosun í Þingeyjarsveit

Þingeyjarsveit hefur, í samvinnu við ríkiskaup, boðið út losun á rotþróm í sveitarfélaginu. Frekari upplýsingar er hægt að finna á útboðsvef ríkiskaupa, en finna má slóðina hér.

Um er að ræða tæmingu á öllum rotþróm sveitarfélagsins en það hefur hingað til verið í höndum tveggja verktaka. Skilafrestur er til 19. febrúar og verður opnun tilboða sama dag. Áhugasamir geta haft samband við sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs eða fengið gögn á útboðsvef ríkiskaupa sem nálgast má á þessari slóð útboðsvefsins.