Útboð á innan- og utanhússfrágangi á nýju stjórnsýsluhúsi í Þingeyjarsveit

Innan- og utanhússfrágangur á nýju stjórnsýsluhúsi í Þingeyjarsveit

Útboð 2

Yfirlit yfir verkið

Verkið felst í því að innrétta gamla Litlulaugaskóla í Reykjadal Þingeyjarsveit, mhl 01, 3ja hæða, skráð stærð 764m2

Helstu liðir: Ný gólfefni samtals um 470 msetja í um 30 stk. innihurðir, stúka niður húsið í skrifstofur með ýmist léttum gifsveggjum og glerveggjum, endurnýja allt rafmagns, hita og neysluvatnskerfi, samkvæmt teikningum og verklýsingum.

Verkefnið er auglýst á heimasíðu Þingeyjarsveitar www.thingeyjarsveit.is og www.utbodsvefur.is frá og með 21. des. 2023 gögn eru afhent rafrænt.

  • Fyrirspurnir berist 7 dögum fyrir opnun tilboða.
  • Fyrispurnum verður svarað 4 dögum fyrir opnun tilboða.
  • Opnun tilboða 31. janúar 2024.
  • Verklok 1. ágúst 2024.
  • Verðlagsgrundvöllur: Verk verðbætist ekki.
  • Frávikstilboð: Eru ekki heimil.

Útboðsgögn eru tilbúin og hægt að nálgast þau með að senda tölvupóst á stakur@stakur.is

Þegar óskað er eftir útboðsgögnum skal eftirfarandi koma fram með tölvupósti

  • Nafn fyrirtækis.
  • Nafn umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.
  • Símanúmer umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.
  • Netfang umsjónaraðila fyrirtækisins sem óskar gagna.