Fara í efni

Upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026 er hafin og fer fram sem hér segir frá 2. maí 2026:

Í Þingeyjarsveit:

  • Laugum í Reykjadal: Þingey stjórnsýsluhús, 6., 7., 11., 13. maí kl. 11:00-14:00, en 15. maí kl. 10:00-12:00.
  • Mikley, Hlíðavegi 6 Mývatnssveit: Föstudag 8. og miðvikudag 13. maí kl. 11:00-14:00.
  • Stórutjarnaskóla Ljósavatnsskarði: Þriðjudaginn 12. maí kl. 11:00-14:00.

Aðrir staðir á Norðurlandi eystra:

  • Akureyri, Strandgötu 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg), alla virka daga og á Uppstigningardag kl. 10:00-18:00. Um helgar kl. 11:00-15:00. Á kjördag kl. 10:00-17:00.
  • Húsavík, Útgarði 1, mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00-15:00, en föstudaga kl. 9:00-14:00. Um helgar, á Uppstigningardag og á kjördag kl. 10:00-13:00.
  • Siglufjörður, Gránugötu 6, virka daga kl. 9:00-15:00, en föstudaga kl. 9:00-14:00. Um helgar, á Uppstigningardag og á kjördag kl. 10:00-13:00.
  • Þórshöfn, Langanesvegi 2, virka daga frá kl.10:00-14:00.
  • Dalvíkurbyggð: Ráðhúsinu, 2. hæð, virka daga kl. 10:00-12:00.
  • Grýtubakkahreppur: Túngötu 3, Grenivík, mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-15:00.
  • Raufarhöfn: Skrifstofu Norðurþings, Aðalbraut 23, virka daga kl. 9:00-12:00, eða skv. samkomulagi.
  • Kópasker: Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu 10, 6., 11. og 13. maí kl. 13:00-15:00.
  • Hrísey: Skrifstofu Akureyrarbæjar, Hlein, virka daga kl. 11:00-13:00.
  • Grímsey: Skrifstofu kjörstjóra, Önnu Maríu Sigvaldadóttur, skv. samkomulagi.

 

Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini).

Unnt er að framvísa rafrænu ökuskírteini.

Atkvæðagreiðsla á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum verður auglýst innan hlutaðeigandi stofnana og á www.syslumenn.is 

Umsókn um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, skal berast eigi síðar en fimmtudaginn 14. maí kl. 10:00, og má nálgast hjá embættinu eða á vef landskjörstjórnar www.kosning.is 

Allar almennar upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar má finna á www.kosning.is 

Þessar upplýsingar eru úr bréfi frá sýslumanninum á Norðurlandi eystra.

Getum við bætt efni þessarar síðu?