Fara í efni

Upplýsingar um afhendingu jarðgerðarvéla

Jarðgerðarvélar með 50% niðurgreiðslu

Sveitarfélagið býður upp á jarðgerðarvélar og niðurgreiðir 50% af kostnaði fyrir þau heimili sem vilja nýta sér þessa lausn. Jarðgerðarvélar eru hugsaðar fyrir matarafganga aðra en stór bein og stóra ávaxtasteina. Reikningur frá sveitarfélaginu, að upphæð 35.500 kr., verður sendur í kjölfar afhendingar.

Fyrsta afhending pantaðra véla hefur farið fram og hér eftir verður afhending eftir samkomulagi og hægt að nálgast þær á starfsstöðvum sveitarfélagsins eftir samkomulagi. Umhverfisfulltrúi Þingeyjarsveitar, Daði Lange, segir að viðtökur hafi verið góðar og að reynsla af vélunum sé góð.

Íbúum er bent á að hafa samband við skrifstofu Þingeyjarsveitar ef spurningar vakna, eða senda tölvupóst á Daða: dadi@thingeyjarsveit.is 



Jarðgerðarvélin FoodCycler vinnur duftkennt efni úr lífræna úrganginum úr eldhúsinu, sem hægt er að nýta í garðinn, til dæmis. Hér má skoða frekari upplýsingar um vélina. Íbúum býðst að eignast vélina á 50% afslætti.

Nýtt sorphirðufyrirkomulag væntanlegt 

Lífrænn úrgangur verður enn sóttur í óbreyttri mynd á hvert heimili í sveitarfélaginu þangað til nýtt sorphirðufyrirkomulag kemst í gang. Nýtt fyrirkomulag miðar að því að halda kostnaði í skefjum og draga úr umhverfisáhrifum. Sorphirðuhringurinn í sveitarfélaginu er um 1.400 km, en sérstök heimtaka á lífrænu sorpi myndi valda miklum viðbótarkostnaði og auka kolefnisspor verulega.

Einnig er unnið að útboði á sorphirðu þar sem búast má við frekar breytingum. Nánari upplýsingar um þá framkvæmd verða kynntar síðar.

Löglegir möguleikar íbúa til meðhöndlunar á lífrænum úrgangi að loknu útboði:

  • Moltugerðarvélar til heimilisnota;
  • Moltutunnur
  • Bokashi-aðferð
  • Haughús (ef aðgangur er fyrir hendi)
  • Að fara með lífrænan úrgang á næsta gámasvæði
Getum við bætt efni þessarar síðu?