Ungmennunum okkar er ekki sama!
Í vikunni tók ungmennaráð Þingeyjarsveitar þátt í Ungmennaþingi SSNE á Húsavík, þar sem fimmtíu ungmenni frá 10 sveitarfélögum komu saman. Í kjölfarið fundaði unga fólkið okkar og lagði á ráðin varðandi það, hvernig þeim finnst að starf ungmennráðs eigi að vera og hvar þau eigi að fá áheyrn, samtal og þáttöku.
„Núna er það þannig, að nýtt ungmennaráð er valið á haustin og haldnir eru fjórir fundir yfir skólaárið, þar á meðal einn með sveitarstjórninni,“ segir Gunnhildur Hinriksdóttir, verkefnastjóri æskulýðsmála. „Krakkarnir voru sammála um að þau vildu hafa fleiri fundi og vildu hafa möguleikann á því að fá að sitja í tvö ár í ungmennaráði í staðinn fyrir eitt.“
Vilja kynningu frá sveitarstjórn í skólann
Fundur ungmennaráðs með sveitarstjórninni fór fram 12. mars síðastliðinn, og þar var margt rætt. Meðal annars bentu krakkarnir á það, að sveitarstjórnarfulltrúar höfðu ekki komið í skólana og kynnt sig fyrir þeim, sem þau myndu vilja. Rætt var um, hvernig það væri að vera í sveitarstjórn og til hvers fólk ætti að taka það að sér.
„Unga fólkinu okkar er mjög hugleikið að auka samstarf á milli skólanna varðandi félagsstarf, en þau vöktu athygli á því á fundinum að tengsl við krakka í hinum skólunum í sveitarfélaginu væru mikilvæg og þau vildu meiri samgang,“ segir Gunnhildur. Sveitarstjórnin óskaði eftir tillögum frá ungmennaráði um hugmyndir um samvinnu milli skólanna. Þess má geta að sveitarfélagið fékk nýverið samþykkta styrkbeiðni til Byggðastofnunar í þessum málaflokki og vinna við að útfæra hvernig hann verður nýttur er hafin.
Sitjandi fulltrúar í ungmennaráði árið 2025-2026 eru:
- Frá Reykjahlíðarskóla: Amelía Ásdís Kozaczek. Varamaður - Sigrún Arnarsdóttir
- Frá Stórutjarnaskjóla: Hörður Smári Garðarsson. Varamaður - Auður Tinna Auðunsdóttir
- Frá Þingeyjarskóla: Hafdís Tinna Pétursdóttir. Varamaður - Þór Sæmundarson
- Frá Framhaldsskólanum á Laugum: Sigurveig Birna Snorradóttir. Varamaður - Ellý Rún Ragúels Jóhannsdóttir
- Frá íþrótta-, tómstundar- og menningarnefnd: Daníel Róbert Magnússon. Varamaður - Sigtryggur Karl Jónsson