Fara í efni

Tvennir styrkir úr Sprotasjóði í Þingeyjarsveit

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Tvö verkefni í Þingeyjarsveit hlutu styrk að þessu sinni, annars vegar í Þingeyjarskóla og hins vegar í Reykjahlíðarskóla. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Áherslusvið sjóðsins árið 2025 voru:

  • Leikurinn sem leið til náms
  • Gervigreind
  • Grunnþáttur menntunar - Læsi

Verkefnið Jólasveinasmiðjan - Sagnaarfur í Mývatnssveit hlaut styrk upp á 1,5 milljón króna. 

Verkefnið Jólasveinasmiðjan kynnir nemendur Reykjahlíðarskóla fyrir kvikmyndatækni og stafrænni frásagnalist og undirbýr þau fyrir þátttöku í raunverulegri framleiðslu sem fer fram í Mývatnssveit árið 2026. Nemendur fá fræðilega og verklega þjálfun í leiklist, kvikmyndatækni og tónlistarsköpun undir handleiðslu fagfólks. Verkefnið stuðlar að jafnræði í skapandi námi í dreifbýli, eflir tæknilæsi og styrkir notkun stafrænnar frásagnalistar í starfi skólans á komandi árum.

Verkefnið Efling læsis á mið- og unglingastigi í Þingeyjarskóla hlaut styrk upp á 682.000 kr.

Verkefnið miðar að því að efla læsiskennslu, m.a með því að nýta samvirkar læsiskennsluaðferðir og samþætta vinnu með orðaforða, lesskilning, lesfimi, ritun, samræðu, tjáningu og hlustun í skólastarfi.

 

Til hamingju með styrkina Reykjahlíðarskóli og Þingeyjarskóli!

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?