Fara í efni

Tilkynning frá HMS varðandi aðalskipulagið á skipulagsgátt

Vinna við samþykkt nýs aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2024-2044 er á lokametrunum, en vegna kerfisvillu hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem sér um skipulagsgátt stjórnvalda, voru umsagnaraðilar ekki látnir vita þegar svör við umsögnum þeirra voru tilbúin í gáttinni. Tillaga að aðalskipulaginu var auglýst frá 22. september til 17. nóvember 2025 og alls bárust 76 umsagnir og athugasemdir. Þann 23. mars voru svör við öllum umsögnum birt á gáttinni, en vegna kerfisvillu voru umsagnaraðilar ekki látnir vita með tölvupósti. 

Meðfylgjandi er tilkynning frá HMS um málið:

Til sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar,

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) vekur athygli á kerfisvillu sem kom upp í Skipulagsgátt í tengslum við meðferð Aðalskipulags Þingeyjarsveitar.

Villan leiddi til þess að þeir aðilar sem höfðu gert athugasemdir við skipulagstillöguna fengu ekki sjálfvirka tilkynningu með tölvupósti þegar sveitarstjórn lagði fram samantekt á viðbrögðum við innsendum athugasemdum, eins og gert er ráð fyrir samkvæmt verklagi gáttarinnar og meginreglum stjórnsýsluréttar um upplýsingagjöf og andmælarétt.

Úr framangreindri villu hefur nú verið bætt og ættu allir sem athugasemdir gerðu að hafa fengið tilkynningu með tölvupósti. Þá hefur virkni kerfisins verið yfirfarin og jafnframt verður gripið til viðeigandi ráðstafana til að draga úr líkum á sambærilegum atvikum í framtíðinni.

HMS harmar þau óþægindi og óvissu sem þetta kann að hafa valdið sveitarstjórn og hagsmunaaðilum.

Ef frekari upplýsinga er þörf er HMS reiðubúin að veita nánari skýringar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?