Fara í efni

Þrír mánuðir í Þingeyjarsveit

Ýmislegt vissi ég um Þingeyjarsveit þegar ég sótti um starf sveitarstjóra í sumar en margt hef ég lært og margt á ég ólært núna þremur mánuðum seinna. Svo lengi lærir sem lifir og það er skemmtilegur lærdómur að kynnast nýju sveitarfélagi og nýju samfélagi.

Um er að ræða stærsta sveitarfélag landsins, rétt um 12.000 km2 eða 12% af flatarmáli Íslands. Sveitarfélagið snertir mörk 8 annarra sveitarfélaga í þremur landshlutum. Yfir 40% af sveitarfélaginu fellur undir einhverskonar náttúruvernd, hverfisvernd, fuglafriðland eða friðlýsingu enda um náttúruparadís að ræða. Landsvirkjun er með orkuvinnslu og starfsemi á fjórum stöðum í sveitarfélaginu, hér er beisluð orka og framleitt rafmagn sem nýtist íbúum, atvinnu og iðnaði um land allt.

Þingeyjarsveit rekur þrjá grunnskóla, fjórar leikskóladeildir, fjögur félagsheimili, tvær þjónustumiðstöðvar, stjórnsýsluhús, tvær slökkvistöðvar, íþróttasali og íþróttamiðstöð, sundlaug, þrjár vatnsveitur, þrjár hitaveitur og svo er það fráveitan sem er sér kapítuli. Segja má að svartvatn (frárennsli frá salernum) sé orðið að sérstöku áhugamáli, einn ferðamannastaður skilar um þremur tonnum af svartvatni á dag yfir há-ferðamannatímann og Gullsandur á Hólasandi stendur fyrir sínu í landgræðslulegu tilliti. Rætt hefur verið um hvort hægt sé að vinna frekari áburð úr svartvatninu sem auðvitað fengi heitið mannakorn, kannski er það næsta nýsköpunarverkefnið. Í sveitarfélaginu er sjö fjallskiladeildir og vargeyðing skilar á fjórða hundað refaskottum og annað eins af minkaskottum á einu ári. Sorphringurinn er um 1.100 km og akstur skólabíla á 10 leiðum er um 500 km á dag.

Eitt sem fylgir starfinu og margir vita ekki af er að sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit er líka hafnastjóri. Við hvaða höfn spyr einhver og svarið er Flateyjarhöfn á Skjálfanda, þeirri fallegu eyju sem nýtur hverfisverndar en byggð lagðist af í eyjunni fyrir tæpum 60 árum.

Ég ætlaði að fara að tína til ýmsar staðreyndir um sveitarfélagið eins og einn stærsti náttúrulegi birkiskógurinn, lengsta lindáin, lengsti dalurinn, mesta víðáttan, mesta jarðhitavirknin o.s.frv. en sá fljótt að það myndi enda með ósköpum, ég myndi gleyma einhverju stórfenglegu og móðga fólk svo ég hætti snarlega við. Ég finn samt að Þingeyingurinn í mér hefur blásið út eins og loftkaka í jólabakstri eftir að ég kom í sveitina, hjartað slær í þingeyskum takti. Þvílík náttúrufegurð og þvílík tækifæri sem eitt sveitarfélag hefur upp á að bjóða.

Ekki má gleyma fólkinu því hvað væri sveitarfélagið án íbúanna. Ég hef verið lánsöm að ná að hitta á marga, í réttum, á fundum og samkomum. Ég er að ná að tengja saman fólk, bæi og búskap. Þar hefur Búkollan okkar, Byggðir og bú, skipt sköpum en þau bindi eru ýmist á náttborðinu, stofuborðinu eða á eldhúsborðinu í stanslausri notkun.

Eins og einhverjir vita erum við hjónin hobbýbændur með nokkrar kindur. Eftir hrútasýningar haustsins kom fallegur svargoltóttur hrútur í hjörðina, keyptur frá Ysta-Hvammi. Þemað í nafngiftum ásetnings átti að vera blóm og tré og hrúturinn átti að heita Askur. En eftir Samleiðar/Samherja fíaskóið í haust létu fjáreigendur í hverfinu hvorki laust né fast fyrr en við gáfum það eftir og nú heitir gripurinn Sammi í fjárbókum. Hlýtur að verða mjög gjöfull og góður hrútur.

Ég vil að endingu hvetja fólk til að fylgjast með því sem er að gerast í Þingeyjarsveit. Hér er gefið út fréttabréf í lok hvers mánaðar og einnig er hægt að afla sér fróðleiks með því að fylgjast með á heimasíðu sveitarfélagsins og lesa fundargerðir. Einnig eru fundir sveitarstjórnar öllum opnir en þeir eru að jafnaði haldnir tvisvar í mánuði og yfirleitt í Þingey, stjórnsýsluhúsinu á Laugum.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.

Getum við bætt efni þessarar síðu?