Þjónustustefna - hvað finnst þér?
27.11.2026
Sveitarstjórn er að endurskoða Þjónustustefnu Þingeyjarsveitar 2027. Stefnan var kynnt á íbúafundum í nóvember í félagsheimilum Þingeyjarsveitar. Sveitarstjórn hefur lokið fyrri umræðu um stefnuna, síðari umræða verður á fundi sveitarstjórnar þann 10. desember nk.
Næstu daga verður opið íbúasamráð um þjónustustefnuna.
Óskað eftir ábendingum og athugasemdum á netfangið skrifstofa@thingeyjarsveit.is
Frestur til að senda inn athugasemdir er til 16:00 mánudaginn 7. desember nk.
Þjónustustefnuna má nálgast hér: Þjónustustefna Þingeyjarsveitar 2027
Sveitarstjóri