Þjónustukönnun íþróttamiðstöðva Þingeyjarsveitar

Þjónustukönnun íþróttamiðstöðva Þingeyjarsveitar hefur verið lokað. Þátttaka var mjög góð, 143 svör bárust. Um tveir þriðju svara áttu við íþóttamiðstöðina í Reykjahlíð, en þriðjungur svaraði fyrir íþróttamiðstöðina á Laugum.

Heilt yfir ríkir ánægja með langflesta þjónustuþætti, en einnig komu fram margar góðar og gagnlegar ábendingar. Farið verður yfir niðurstöðurnar með forstöðumönnum íþróttamiðstöðvanna og munu þær án efa nýtast vel m.a. við undirbúning næstu fjárhagsáætlunar. Öllum þátttakendum eru færðar innilegar þakkir fyrir svörin og ábendingarnar.