Þjóðaratkvæðagreiðsla verður að Breiðumýri 29.ágúst
14.08.2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla um það, hvort að Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, verður þann 29. ágúst næstkomandi. Kjörfundur í Þingeyjarsveit verður á milli 10:00 og 22:00 að Breiðumýri. Mikilvægt er að muna að taka með sér gild persónuskilríki. Hægt er að nota rafræn ökuskírteini.
Svarkostir á kjörseðlinum verða já og nei.
Upplýsingar um málefni þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst nk. má nálgast á sérstökum kynningarvef landskjörstjórnar, kosning.is. (af vefnum island.is)
- Hér má sjá upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu.