Þingeyjarsveit leitar að umsjónaraðila með félagsheimilinu Ljósvetningabúð
14.10.2026
Þingeyjarsveit leitar að umsjónaraðila með félagsheimilinu Ljósvetningabúð
Almennt:
Umsjónaraðili félagsheimilisins er verktaki og starfar samkvæmt verksamningi við Þingeyjarsveit.
Helstu verkefni:
- Ábyrgð á daglegri umsjón með húsnæðinu og búnaði þess
- Minni viðhaldsverkefni og smáviðgerðir ásamt umhirðu lóðar
- Móttaka leigutaka vegna viðburða og upplýsingagjöf til þeirra varðandi umgengni, frágang og aðrar kröfur skv. leigusamningi.
- Þrif húsnæðis
- Gerir tillögur að hefðbundnu viðhaldi og endurbótum á húsi og búnaði
- Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
- Góð þjónustulund og samskiptahæfni
- Frumkvæði og skipuleg vinnubrögð
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af umsjón fasteigna er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá. Umsóknum skal skilað á netfangið umsokn@thingeyjarsveit.is. Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri, Katrín Sigurjónsdóttir í síma 512 1800 eða á netfangið katrins@thingeyjarsveit.is