Þingeyjarsveit auglýsir útboð á skólaakstri

Þingeyjarsveit óskar eftir tilboðum í skólaakstur skólaárin 2023-2026.

Um er að ræða eina akstursleið. 

Leið 5. Aðaldalur norður – Þingeyjarskóli.
9 sæti 34 km á dag

Að jafnaði eru tvær ferðir á hverjum skóladegi, sem eru um 180 á hverju skólaári.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt frá skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna frá föstudeginum 28. júlí. Síminn er 464-3322 og netfangið thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is.
Vinsamlegast takið fram í tölvupóstinum nafn og kt. fyrirtækis sem og þess einstaklings sem óskar eftir útboðsgögnum, ásamt netfangi og farsímanúmeri.

Skila ber tilboðum í lokuðu umslagi í síðasta lagi fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 8. ágúst 2023 á skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna. Þá verða þau þar opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar