Þingeyjarsveit auglýsir útboð á skólaakstri

Þingeyjarsveit óskar eftir tilboðum í skólaakstur skólaárin 2023-2026.

Um er að ræða níu akstursleiðir. Heimilt er að bjóða í eina leið eða fleiri.

Leið 1. Mývatnssveit – Reykjahlíðarskóli.
14 sæti    69 km á dag

Leið 2a). Baldursheimur – Laugar.
6 sæti    64 km á dag

Leið 2b). Stafn, Kvígindisdalur – Þingeyjarskóli.
10 sæti    70 km á dag

Leið 3. Laugar – Þingeyjarskóli.
23 sæti    40 km á dag

Leið 4. Aðaldalur suður – Þingeyjarskóli.
28 sæti    39 km á dag

Leið 5. Aðaldalur norður – Þingeyjarskóli.
9 sæti    34 km á dag

Leið 6. Kinn – Þingeyjarskóli.
11 sæti    56 km á dag

Leið 7. Fnjóskadalur suður – Stórutjarnaskóli.
8 sæti    60 km á dag

Leið 8. Fnjóskadalur norður – Stórutjarnaskóli.
9 sæti    35 km á dag

Að jafnaði eru tvær ferðir á hverjum skóladegi, sem eru um 180 á hverju skólaári.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt frá skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna frá föstudeginum 30. júní. Síminn er 464-3322 og netfangið thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is.
Vinsamlegast takið fram í tölvupóstinum nafn og kt. fyrirtækis sem og þess einstaklings sem óskar eftir útboðsgögnum, ásamt netfangi og farsímanúmeri.

Skila ber tilboðum í lokuðu umslagi í síðasta lagi fyrir kl. 11:00 mánudaginn 24. júlí 2023 á skrifstofu Þingeyjarsveitar í Kjarna. Þá verða þau þar opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er, hafna öllum eða hafna einstökum leiðum.

Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar