Fara í efni

Þingeyjarsveit auglýsir eftir þjálfurum í Janusarverkefnið í Reykjahlíð og/eða á Laugum.

Þingeyjarsveit óskar eftir að ráða öflugan og áhugasaman einstakling til að sinna þjálfun í Janusarverkefninu, heilsueflingarverkefni fyrir íbúa 60 ára og eldri.

Markmið Janusarverkefnisins er að stuðla að bættri heilsu, aukinni virkni og bættum lífsgæðum eldri íbúa með markvissri hreyfingu, fræðslu og stuðningi. Verkefnið byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun og er unnið í samstarfi við Janus heilsueflingu.

Starfsstöðvar eru Íþróttamiðstöðin á Laugum og/eða Íþróttamiðstöðin í Reykjahlíð.

Helstu verkefni

  • Leiðbeina þátttakendum um líkamsbeitingu og notkun tækja og lóða.
  • Fylgja eftir æfingaáætlunum samkvæmt verklagi Janusar - heilsueflingar.
  • Hvetja og styðja þátttakendur í heilsueflandi lífsstíl.
  • Taka þátt í samstarfi við verkefnastjóra og aðra aðila sem koma að verkefninu.

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, svo sem á sviði íþrótta-, heilsu- eða sjúkraþjálfunar.
  • Reynsla af leiðsögn hópa er kostur.
  • Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót.
  • Sjálfstæði í starfi og skipulagshæfni.
  • Áhugi á heilsueflingu og velferð íbúa.

 

Starfshlutfall og ráðning

Um er að ræða hlutastarf með 5 – 12 klst. viðveru á viku. Nánara vinnufyrirkomulag og starfshlutfall verður ákveðið í samráði við ráðinn starfsmann.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til 17. september 2026

Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Hinriksdóttir, verkefnastjóri Janusarverkefnisins í síma 512-1800 eða á netfanginu gunnhildur@thingeyjarsveit.is

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um og taka þátt í að efla heilsu og lífsgæði eldri íbúa Þingeyjarsveitar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?