Þingeyjarskóli og Reykjahlíðarskóli auglýsa lausar stöður

Þingeyjarskóli í Aðaldal er með um 100 nemendur á leik- og grunnskólaaldri, þar af rúmlega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.
Við Þingeyjarskóla eru lausar stöður frá 1. ágúst 2023:
- Stuðningsfulltrúa við leikskóladeildina Barnaborg í 80-100% starf.
- Leikskólakennara/leikskólastarfsmanni við leikskóladeildina Barnaborg á Hafralæk í 100% starf.
- Leikskólakennara við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum í 60-80% starf.

Möguleiki er á húsnæði á staðnum.  Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í síma 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Reykjahlíðarskóli í Mývatnssveit er með um 40 nemendur í 1.-10. bekk og tæplega 30 nemendur í leikskólanum Yl.
Við Reykjahlíðarskóla eru lausar stöður frá 1. ágúst 2023:
- Tónlistarkennari í 100 % starf (afleysing til eins árs)
- Umsjónarkennari á yngsta stig 100% starf (afleysing til eins árs)
- Íþróttakennari 80-100% starf (afleysing til eins árs)
- Matráður 100% starf.

Möguleiki á húsnæði á staðnum. Nánari upplýsingar veitir Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4644375 eða í gegnum netfangið anna@reykjahlidarskoli.is

Skólar Þingeyjarsveitar leggja áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólana og teymiskennsla öflug. Skólar Þingeyjarsveitar eru í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Áhersla er á umhverfismennt og heilsueflandi skólastarf. Skólarnir hafa lagt rækt við ríkar tónlistarhefðir.

Lausar stöður eru við skóla Þingeyjarsveitar næsta skólaár. Við leitum að fólki sem:

  • Er umhugað um velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
  • hefur afburða góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
  • hefur áhuga á skólaþróun og skapandi kennsluháttum.
  • er jákvætt og sveigjanlegt, sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði.
  • er samstarfsfúst og lausnamiðað, tilbúið að takast á við ný og spennandi verkefni í samstarfi og teymisvinnu.
  • er með viðeigandi menntun eða menntun sem nýtist í starfi.

Umsóknafrestur um stöðurnar er til 25. júlí og skal umsóknum skilað til viðkomandi skólastjóra. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi ef við á. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.